Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 15. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hildur Einarsdóttir - formaður
  • Leifur Andri Leifsson - aðalfulltrúi
  • Heiðdís Geirsdóttir - aðalfulltrúi
  • Friðmey Jónsdóttir - aðalfulltrúi
  • Ævar Örn Jóhannsson - aðalfulltrúi
  • María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Guðmundsson
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir
  • Ana Tepavcevic

Ritari

  • Gunnar Guðmundsson

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Sumarnámskeið íþróttafélaga 2026

Lögð fram samantekt íþróttadeildar á umfangi og kostnaði við sumarnámskeið íþrótta- og æskulýðsfélaga í Kópavogi sumarið 2026. Jafnframt lagðar fram skýrslur félaganna vegna námskeiðanna.

Lagt fram.

Umræður um endurskoðun reglna fyrir árið 2027.

Almenn mál

02

Íþróttahátíð Kópavogsbæjar 2026

Lögð fram tillaga að dagsetningu fyrir Íþróttahátíð Kópavogsbæjar 2026 og drög að dagskrá hátíðarinnar.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir framlagða dagskrá og að Íþróttahátíð Kópavogs verði haldin fimmtudaginn 7. janúar 2027 í Salnum kl. 17:30.

Almenn mál - umsagnir og vísanir

03

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum

Lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Miðflokksins varðandi úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum, sem vísað var til úrvinnslu á menntasviði á 14. fundi lýðheilsu- og íþróttanefndar 8. október.

Lagt fram. Umræður.

Bókun:

Undirritaður tekur eftir miklu ójafnvægi á úthlutuðum tímum og tímum til útleigu á milli Kórsins annars vegar og Fífunni hins vegar og veltir fyrir sér hvort óeðlilegt væri að skiptingin væri jafnari.

Undirritaður væri til í að sjá endurskoðun á útleigu tímum í heild sinni þar sem íþróttafélög hafa talað um bæði tíma- og aðstöðuleysi, og forgangsraða þar með börnum og afreksstarfi fram yfir bumbubolta.

Ævar Örn Jóhannsson

Almenn mál - umsagnir og vísanir

04

Tillaga um akstur Frístundavagnsins á föstudögum

Lögð fram umsögn menntasviðs við tillögu Samfylkingar varðandi akstur Frístundavagns á föstudögum.

Lagt fram.

Bókun:

"Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar menntasviði fyrir umsögnina. Hún sýnir að föstudagsakstri var hætt í sparnaðarskyni, ekki vegna þess að þörfin hafi horfið. Enn eru um 236 börn á aldrinum 6-9 ára með æfingar á föstudögum, meðal annars börn úr Sala- og Lindahverfi og af Kársnesi sem sækja körfubolta í Smárann. Aðgengi barna að íþróttum á ekki að ráðast af því hvaða dag þau æfa, hvar þau búa eða hvaða íþrótt þau velja. Undirrituð leggur til að föstudagsakstur verði tekinn upp að nýju og að Kópavogsbær beri viðbótarkostnaðinn, um 12 m.kr. á ári. Erfitt er að færa rök fyrir því að aukakostnaðurinn eigi að leggjast á foreldra eða íþróttafélögin. Að öðrum kosti væri hægt að skoða að útfæra gjaldið fyrir frístundavagninn þannig að komið verði til móts við þá foreldra barna sem þurfa á þjónustunni að halda á föstudögum."

Friðmey Jónsdóttir

Bókun:

„Meirihluti íþrótta og lýðheilsunefndar þakkar menntasviði fyrir ítarlega og greinargóða umsögn um kostnað og fyrirkomulag frístundaaksturs á föstudögum. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að börn í Kópavogi hafi gott aðgengi að íþróttastarfi og að áfram verði stutt við öflugt starf íþróttafélaganna í bænum. Frístundavagninn er mikilvægur liður í þeirri þjónustu. Kópavogsbær jók framlag sitt til verkefnisins verulega árið 2025. Samkvæmt umsögninni er áætlaður kostnaður bæjarins vegna frístundaaksturs um 18,5 milljónir króna árið 2026. Akstri á föstudögum var hætt eftir að kostnaður við akstur á dag hækkaði um 54% á milli ára, og verð hefur haldið áfram að hækka síðan. Samkvæmt umsögn menntasviðs myndi föstudagsakstur kosta Kópavogsbæ um 12 milljónir króna á ári, auk kostnaðar við viðbótarmönnun. Það jafngildir um tveimur þriðju af núverandi framlagi bæjarins til verkefnisins. Um er því að ræða verulega kostnaðaraukningu við þjónustu sem fyrirsjáanlegt er að tiltölulega fá börn myndu nýta. Þótt 236 börn hjá íþróttafélögunum séu með æfingar á föstudögum er ljóst að mun færri myndu nýta frístundavagninn, meðal annars vegna göngufæris við æfingasvæði og tímasetninga æfinga. Íþróttafélögin hafa jafnframt eftir fremsta megni lagað æfingatöflur yngstu iðkendanna að akstursdögum vagnsins og stuðlað þannig að hagkvæmari nýtingu þjónustunnar. Meirihlutinn telur mikilvægt að sýna ábyrgð í ráðstöfun fjármuna bæjarins og forgangsraða þannig að fjármunir nýtist sem flestum börnum og fjölskyldum. Með hliðsjón af þeim verulega viðbótarkostnaði sem tillagan felur í sér og takmörkuðum fjölda mögulegra notenda telur meirihlutinn ekki forsvaranlegt að ráðast í þessa útvíkkun þjónustunnar að svo stöddu. Meirihlutinn leggur til að núverandi fyrirkomulag haldist óbreytt. Áfram verði unnið í góðu samstarfi við íþróttafélögin að tryggja börnum sem best aðgengi að íþróttastarfi í bænum.“

Hildur Einarsdóttir

Leifur Andri Leifsson

Heiðdís Geirsdóttir

Fundargerðir til kynningar

05

Skákstyrktarsjóður Kópavogs - Fundargerðir sjóðsins

Fundargerðir sjóðsins fyrir árið 2026 lagðar fram.

Lagt fram.

Aðsend erindi

06

HK - Ósk um að setja upp upplýst merki félagsins við Kórinn.

Lagt fram erindi frá HK, dagsett 16. nóvember 2026, þar sem félagið óskar eftir samþykki fyrir uppsetningu á upplýstu merki félagsins fyrir ofan aðalinngang Kórsins.

Íþrótta- og lýðheilsunefnd felur deildarstjóra íþróttadeildar að afla frekari upplýsinga um beiðnina og jafnframt eiga samtal við umhverfis- og skipulagssvið.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

07

Tilnefningar um kjör á íþróttafólki Kópavogs 2026

Lagður fram listi með íþróttafólki sem tilnefnt er af íþróttafélögum vegna íþróttaársins 2026.

Íþróttaráð samþykkir að veita 36 íþróttafólki í flokki 13-16 ára og 10 íþróttafólki í flokki 17 ára og eldri, viðurkenningu ráðsins á íþróttahátíð Kópavogs sem haldin verður 7. janúar nk.

Íþróttafólk sem hlýtir viðurkenningu íþróttaráðs að þessu sinni eru:

13-16 ára

Sölvi Hrafn Arnarsson og Margrét Dúna Guðmundsdóttir körfubolti, Guðbjörg Helga Hilmarsdóttir og Jón Ingvar Eyþórsson sund, Eyrún Svala Gustavsdóttir og Gunnar Bergvin Árnason Birkis frjálsar íþróttir, Elísabet María Júlíusdóttir og Arnar Bjarki Gunnleifsson knattspyrna, Alexander Ævar Árnason rafíþróttir, öll úr Breiðablik.

Sóldís Inga Gunnarsdóttir og Magnús Darri Markússon bogfimi Boginn, Eiður Fannar Gapunay og Soffía Ísabella Bjarnadóttir dans Dansíþróttafélagi Kópavogs, Hrafnhildur Sigurðardóttir og Bjartur Ægisson golf GKG, Sigurrós Carmen Hjartardóttir og Mikael Kristall Ómarsson Ycot dans Dansfélaginu Hvönn, Jóhann Freyr Ingimarsson og Gerður Líf Stefánsdóttir tennis Tennisfélagi Kópavogs, Hilmir Páll Hannesson og Kristín Rut Jónsdóttir hestamennska Spretti, Kári Vagn Birkisson pílukast Pílufélagi Kópavogs.

Viktoría Sól Vífilsdóttir dans, Þorbjörg Rún Emilsdóttir og Dagur Freyr Eiríksson blak, Alexander Sigursteinsson og Tinna Dröfn Hauksdóttir handbolti, Ástrós Birna Hólmsteinsdóttir og Bjarki Örn Brynjarsson knattspyrna, Jóel Hrafn Gunnarsson og Karítas Magnúsdóttir bandý, Andri Sigurjón Hrundarson borðtennis, öll úr HK.

Kári Hjaltason og Rakel Sara Pétursdóttir áhaldafimleikar, Emelía Björk Stefánsdóttir og Einar Árni Tryggvason hópfimleikar, öll úr Gerplu

Í flokki 17 ára og eldri er afgreiðslu frestað til næsta fundar nefndarinnar.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

08

Breiðablik - Knattspyrnudeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Arnari Bjarka Gunnleifssyni og Elísabetu Maríu Júlíusdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

09

Breiðablik - Frjálsíþróttadeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Gunnari Bergvin Árnasyni Birkis og Eyrúnu Svölu Gustavsdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

10

Breiðablik - Körfukanttleiksdeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Sölva Hrafni Arnarssyni og Margréti Dúnu Guðmundsdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

11

Breiðablik - Rafíþróttadeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Alexander Ævari Árnasyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

12

Breiðablik - Sund - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Jóni Ingvari Eyþórssyni og Guðbjörgu Helgu Hilmarsdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

13

HK - Handbolti - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Alexander Sigursteinssyni og Tinnu Dröfn Hauksdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

14

HK - Bandý - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Jóel Hrafni Gunnarssyni og Karítas Magnúsdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

15

HK - Blak - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Degi Frey Eiríkssyni og Þorbjörgu Rún Emilsdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

16

HK - Knattspyrna - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Bjarka Erni Brynjarssyni og Ástrósu Birnu Hólmsteinsdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

17

HK - Borðtennis - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Andra Sigurjóni Hrundarsyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

18

HK - Dans - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Viktoríu Sól Vífilsdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

19

Gerpla - Hópfimleikar - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Einari Árna Tryggvasyni og Emelíu Björk Stefánsdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

20

Gerpla - Áhaldafimleikar - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Kára Hjaltasyni og Rakel Söru Pétursdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

21

GKG - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Bjarti Ægissyni og Hrafnhildi Sigurðardóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

22

Sprettur - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Hilmi Páli Hannessyni og Kristínu Rut Jónsdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

23

TFK - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Jóhanni Frey Ingimarssyni og Gerði Líf Stefánsdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

24

PFK - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Kára Vagni Birkissyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

25

Boginn - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Magnúsi Darra Markússyni og Sóldísi Ingu Gunnarsdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

26

DÍK - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Eiði Fannari Gapunay og Soffíu Ísabellu Bjarnadóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

27

Hvönn - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Mikael Kristal Ómarssyni Ycot og Sigurrós Carmen Hjartardóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

28

Breiðablik - Körfukanttleiksdeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

29

Breiðablik - Kraftlyftingadeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

30

Breiðablik - Hlaupadeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

31

Breiðablik - Knattspyrnudeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

32

Breiðablik - Sund - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

33

Breiðablik - Frjálsíþróttadeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

34

HK - Bandý - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

35

HK - Knattspyrna - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

36

HK - Handbolti - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

37

HK - Borðtennis - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

38

HK - Blak - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

39

Gerpla - Hópfimleikar - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

40

Gerpla - Áhaldafimleikar - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

41

GKG - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

42

TFK - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

43

Sprettur - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

44

Boginn - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

45

Hvönn - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

46

Tilnefningar - Flokkur ársins 2026

Lagður fram listi með þeim flokkum sem tilnefndir eru af íþróttafélögum í Kópavogi vegna Flokkur ársins 2026.

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

47

Breiðablik - Körfukanttleiksdeild - Tilnefning til flokks ársins 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

48

HK - Borðtennis - Tilnefning til flokks ársins 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

49

HK - Bandý - Tilnefning til flokks ársins 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

50

HK - Blak - Tilnefning til flokks ársins 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

51

HK - Handbolti - Tilnefning til flokks ársins 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

52

HK - Knattspyrna - Tilnefning til flokks ársins 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

53

Breiðablik - Knattspyrnudeild - Tilnefning til flokks ársins 2026

Frestað.

Tilnefningar til íþróttafólks Kópavogsbæjar

54

Gerpla - Áhaldafimleikar - Tilnefning til flokks ársins 2026

Frestað.