Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Suðvesturlínur frá Hellisheiði út á Reykjanes, breytt Aðalskipulag.

Málsnúmer: 0701193

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2556. fundur

Frá Sigurbirni Þorbergssyni hrl., dags. 3/7, óskað svara við fyrirspurnum í tengslum við flutning Hamraneslínu úr landi Vatnsenda.

<DIV&gt;<DIV&gt;Erindinu hefur þegar verið svarað.</DIV&gt;</DIV&gt;

02

Bæjarráð - 2541. fundur

Frá umhverfisráðuneytinu, dags. 1/3, endursendur undirritaður uppdráttur vegna breytingar á aðalskipulagi Kópavogs 2000 - 2012, Suðvesturlínur, ásamt auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

03

Bæjarráð - 2515. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir erindið ásamt umhverfisskýrslu og umsögn bæjarskipulags dags. 26. ágúst 2009 og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu ásamt umhverfisskýrslu og umsögn bæjarskipulags, dags. 26.&nbsp;ágúst 2009&nbsp;og&nbsp;til afgreiðslu bæjarstjórnar.</DIV&gt;</DIV&gt;

04

Bæjarráð - 2507. fundur

Frá Landsneti, dags. 29/5, upplýsingar varðandi styrkingu raforkuflutningskerfisins á Suðvesturlandi.

<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs og skipulags- og umhverfissviðs til úrvinnslu.</DIV&gt;

05

Skipulagsnefnd - 1160. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 16. desember 2008 er lagt fram erindi Landsnets hf. dags. 5. nóvember 2008. Í bréfinu er vísað til erinda dags. 17. mars 2008. Óskað er eftir því að fyrirhugaðar háspennulínur frá Hellisheiði að Straumsvík og Geithálsi verði teknar til skipulagsmeðferðar. Gert er ráð fyrir tveimur nýjum háspennulínum samsíða núverandi línu ofan Helgafells í stað einnar skv. fyrra erindi Landsnets. Bygging fyrri línunnar og samþykki fyrir seinni línunni er forsenda þess að unnt verði að fjarlægja Hamraneslínur 1 og 2.%0DMeð erindinu er tilkynnt að verði framkvæmdir á flutningskerfinu gerðar í þeim áföngum, sem lýst er í meðfylgjandi verklýsingu, mun Landsnet bera allan kostnað af þeim, með vísan til lögbundins hlutverks fyrirtækisins. %0DMeðfylgjandi: Yfirlitsmyndir af línuleiðum og verklýsing dags. 6. nóvember 2008.%0DFrestað. Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að vinna tillögu að breyttu aðalskipulagi samanber ofangreint. %0D Á fundi skipulagsnefndar 20. janúar 2009 er erindið lagt fram að nýju ásamt matslýsingu dags. 20. janúar 2009. %0D Skipulagsnefnd samþykkti að tillagan verði auglýst í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 3. mars 2009 er erindið lagt fram að nýju ásamt umhverfisskýrslu verkfræðistofunnar Efla ehf. dags. 25. febrúar 2009.%0D

Skipulagsnefnd samþykkir umhverfisskýrslu dags. 25. febrúar 2009 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.

06

Bæjarráð - 2490. fundur

Frá Skipulagsstofnun, dags. 28/1, óskað umsagnar Kópavogsbæjar um tillögu að matsáætlun ofangreindrar framkvæmdar.

<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar til úrvinnslu.</DIV&gt;