Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Boðaþing 5-9, húsgögn og búnaður í þjónustumiðstöð

Málsnúmer: 0705300

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2541. fundur

Frá deildarstjóra hönnunardeildar og yfirmanni þjónustudeildar aldraðra, dags. 23/2, óskað heimildar til að ganga til samninga við Á. Guðmundsson ehf. og Sýrusson um kaup á húsgögnum skv. verðkönnun, og að borðbúnaður verði keyptur af Fastus ehf. að undangenginni verðkönnun.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð veitir umbeðna heimild.</DIV&gt;</DIV&gt;

02

Bæjarráð - 2535. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 21/1, óskað heimildar til þess að kaupa húsgögn og búnað í þjónustumiðstöð aldraðra í Boðaþingi 9, að undangenginni verðkönnun og í samstarfi við Framkvæmdasýslu ríkisins, en þeir annast innkaup á búnaði í þjónustuíbúðir í Boðaþingi 5 og 7.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð veitir umbeðna heimild.</DIV&gt;</DIV&gt;

03

Bæjarráð - 2514. fundur

Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 12/8, þriðjudaginn 11. ágúst 2009, voru opnuð tilboð í lóðafrágang vegna íbúða aldraðra að Boðaþingi 5, 7 og 9, samkvæmt útboðsgögnum, dags. í júlí. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda B. Ott ehf.

<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir að leitað verði samninga við B. Ott ehf.</DIV&gt;

04

Bæjarráð - 2511. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 7/7, óskað heimildar til að bjóða út í opnu útboði lóðafrágang og frágang götu að hluta við Boðaþing 5, 7 og 9. Um er að ræða lóð þjónustumiðstöðvar aldraðra og fyrri hluta hjúkrunaríbúða.

<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir að veita umbeðna heimild.</DIV&gt;

05

Bæjarráð - 2509. fundur

Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 16/6, varðandi ósk Hrafnistu um að tengja þjónustu- og öryggisíbúðir aldraðra að Boðaþingi 22-24 við þjónustumiðstöð að Boðaþingi 5-9 með göngum undir götu milli húsanna. Tillaga um að gerður verði samningur við Hrafnistu þess efnis, að Kópavogsbær sjái um gerð gangnanna innan lóðar Boðaþings 5-9 og undir götu, en Hrafnista innan lóðar Boðaþings 22-24.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir tillöguna.</DIV&gt;</DIV&gt;

06

Bæjarráð - 2499. fundur

Opnuð voru tilboð þann 7. apríl í verkið Þjónustumiðstöð aldraðra í Boðaþingi 9, frágangur innanhúss. Lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Baldur Jónsson ehf.%0D

<DIV&gt;<DIV&gt;Sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs gerði grein fyrir tillögunni. Bæjarráð samþykkir tillöguna.</DIV&gt;</DIV&gt;

07

Bæjarráð - 2495. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 9/3, óskað heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði fullnaðarfrágang innanhúss á Þjónustumiðstöð aldraðra við Boðaþing í Kópavogi.

Bæjarráð veitir umbeðna heimild.