Til baka í fundargerðir
Digranesvegur 81 / Hrísar. Viðræður - dómsmál.
Málsnúmer: 0707091
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2809. fundur
Lögð fram matsbeiðni f.h. Magnúsar Ingjaldssonar á hendur Kópavogsbæ þar sem óskað er eftir að dómkvaddir verði tveir matsmenn til þess að meta tjón sem matsbeiðandi telur sig hafa orðið fyrir vegna takmarkana sem Kópavogsbær hefur sett á hagnýtingu á lóð hans að Digranesvegi 81, en lóðin er að stærstum hluta skilgreind sem opið svæði en ekki atvinnu- og iðnaðarsvæði.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
02
Bæjarráð - 2727. fundur
Frá JP Lögmönnum, dags. 7. apríl, krafa um að Sorpa bs. víki af lóðinni Digranesvegi 81.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.