Vatnsendablettur 25a, (nú við Fornahvarf) deiliskipulag
Málsnúmer: 0804120
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1046. fundur
Lið 5 í fundargerð skipulagsnefndar 15/11 vísað til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.
02
Skipulagsnefnd - 1196. fundur
Lagður fram úrskurður USB frá 6. júlí 2010 mál 42/2008 þar sem tekin var fyrir kæra vegna afgreiðslu skipulagsnefndar frá 3. júní 2008 á beiðni um breytt deiliskipulag við Fornahvarf.
Skipulagsnefnd ítrekar afgreiðslu nefndarinnar frá 3. júní 2008 þar sem hafnað var að taka 2897 m2 spildu milli Fornahvarfs 4 og 6 (Vatnsendablettur 25a) inn á skipulag. Umrædd spilda er skilgreind í aðalskipulagi bæjarins sem opið óbyggt svæði og er innan 50 m2 helgunarsvæðis Elliðavatns. Í gildandi deiliskipulagi svæðisins "Milli vatns og vegar" frá 2001 er miðað við að ekki séu búnar til lóðir (spildur) sem eru að jafnaði ekki nær vatnsbakka Elliðavatns en 50 m.Vísað til bæjarstjórnar.