Samningar um kaup á íþróttamannvirkjum
Málsnúmer: 0806188
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1014. fundur
Frá bæjarstjóra, mál sem frestað var í bæjarráði 11/3 sl., undirritaður samningur milli KAÍ annars vegar og Kópavogsbæjar hins vegar, um kaup á íþróttamannvirkjum. Málinu var vísað til bæjarstjórnar, sbr. lið 6. í fundargerð bæjarráðs 25/3 sl.

Til máls tók Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri, og gerði grein fyrir fyrirliggjandi samningi. Þá tóku til máls Ólafur Þór Gunnarsson og Samúel Örn Erlingsson.

Forseti bar undir fundinn tillögu Ólafs Þórs Gunnarssonar um frestun á afgreiðslu samninganna.

Bæjarstjórn felldi tillöguna með sjö atkvæðum en tveir greiddu atkvæði með henni.

Forseti bar þá undir fundinn samning um kaup á íþróttamannvirkjum í Vallakór.

Bæjarstjórn samþykkti samninginn með sjö samhljóða atkvæðum en þrír bæjarfulltrúar sátu hjá.

Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Undirritaður getur ekki greitt atkvæði með fyrirliggjandi samningi við KAÍ. VG sjá enga ástæðu til að halda áfram samstarfi við félagið nú þegar bærinn leysir mannvirkin til sín. VG fagna því hins vegar að forræði íþrótta- og kennslumannvirkja í bænum sé alfarið á hendi sveitarfélagsins.

Ólafur Þór Gunnarsson"

Jón Júlíusson vék af fundi undir þessum lið.

02
Bæjarráð - 2543. fundur
Frá bæjarstjóra, mál, sem var frestað á fundi bæjarráðs þann 11/3 sl., undirritaður samningur milli KAÍ annars vegar og Kópavogsbæjar hins vegar, um kaup á íþróttamannvirkjum,

Bæjarráð samþykkir samninginn með þremur samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi var á móti og einn bæjarfulltrúi sat hjá.

"Undirrituð greiðir atkvæði gegn samningnum til þess að vísa honum til afgreiðslu bæjarstjórnar þar sem ég og aðrir bæjarfulltrúar geta tekið afstöðu til málsins.

Guðríður Arnardóttir."

03
Bæjarráð - 2541. fundur
Frá bæjarstjóra, undirritaður samningur milli KAÍ og Kópavogsbæjar um kaup á íþróttamannvirkjum.

Bæjarráð frestar afgreiðslu samningsins.