Ósk eftir aðstöðu fyrir útvarpssenda á Rjúpnahæð
Málsnúmer: 0806241
Ferill máls
01
Framkvæmdaráð - 12. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs. Óskað eftir afstöðu framkvæmdaráðs til áframhaldandi stöðu fjarskiptamastra á Rjúpnahæð.

Samþykkt að möstrin verði fjarlægð. Sviðsstjóra falið að svara erindinu.

02
Bæjarráð - 2589. fundur
Frá Konrad Engineering, dags. 24/3, óskað heimildar fyrir Útvarpsstöðina Ás fyrir sendaaðstöðu á Rjúpnahæð, sem samþykkt hefur verið af hálfu Garðabæjar.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.

03
Bæjarráð - 2545. fundur
Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 14/4, bæjarráð óskaði eftir frekari úrvinnslu á fundi sínum 25/3, á erindi Hans Konrad Hansen, þar sem óskað er eftir aðstöðu á Rjúpnahæð fyrir útvarpssenda. Ekki er mælt sérstaklega með að heimilað verði að setja upp senda á þessum stað.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

04
Bæjarráð - 2543. fundur
Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, varðandi umsögn um aðstöðu fyrir útvarpssenda á Smalaholti, sem frestað var á síðasta fundi bæjarráðs 18/3.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs til frekari úrvinnslu.

05
Bæjarráð - 2542. fundur
Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 16/3, umsögn, sem óskað var eftir í bæjarráði 11/3 sl., um beiðni Útvarpsstöðvarinnar Ás um að fá aðstöðu fyrir útvarpssenda á Rjúpnahæð. Lagt er til að erindinu verði hafnað, en verið er að athuga aðrar hugsanlegar staðsetningar fyrir útvarpssendi.

Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins. Bæjarráð óskar eftir því að sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs mæti til næsta fundar vegna málsins.

06
Bæjarráð - 2541. fundur
Frá Hans K. Kristjánssyni, dags. 9/3, ný beiðni um aðstöðu á Rjúpnahæð fyrir útvarpssenda.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs til umsagnar.