Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Breiðahvarf 5. Breytt deiliskipulag

Málsnúmer: 0808001

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1168. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 12. ágúst 2008 er lagt fram erindi Sigurðar Guðmundssonar og Halldóru Halldórsdóttur, lóðarhafa að lóð nr. 5 við Breiðahvarf. Í erindinu felst ósk um að breyta einbýlishúsinu Breiðahvarfi 5 tímabundið í ungbarnaleikskóla fyrir 25 börn. Gert er ráð fyrir að starfsmenn verði 5 og 10 bílastæði á lóð. Lóðarhafar hafa fengið samþykki leikskólanefndar og bæjarráðs fyrir breytingunni svo framarlega sem skilyrði bæjarins um starfsemi leikskóla séu uppfyllt.Meðfylgjandi: Fundargerð leikskólanefndar dags. 20. maí 2008 og fundargerð bæjarráðs dags. 22. maí 2008. Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn sviðstjóra Fræðslu- og menningarsviðs.Á fundi skipulagsnefndar 26. ágúst 2008 er erindið lagt fram að nýju ásamt umsögn sviðstjóra Fræðslu- og menningarsviðs.Skipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.Skipulagsnefnd óskar jafnframt eftir því við lóðarhafa að sýnd verði lausn bílastæða og aðkomu bifreiða.Á fundi bæjarráðs 28. ágúst 2008 er afgreiðslu tillögunnar frestað. Á fundi skipulagsnefndar 16. desember 2008 er erindið lagt fram að nýju. Skipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.Á fundi bæjarráðs 18. desember 2008 var erindinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 19. desember 2008 var tillaga um auglýsingu samþykkt.Tillagan var auglýst 19. maí til 16. júní 2009, með athugasemdafresti til 7. júlí 2009. Athugasemdir bárust. Á fundi skipulagsnefndar 14. júlí 2009 er erindið lagt fram á ný ásamt athugasemdum.

<DIV&gt;<P class=MsoNormal style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt"&gt;<B style="mso-bidi-font-weight: normal"&gt;<I&gt;<SPAN lang=DA style="FONT-SIZE: 11.5pt; mso-ansi-language: DA"&gt;<FONT face="Times New Roman"&gt;Með tilvísan í athugasemdir og ábendingar er bárust á kynningartíma hafnar skipulagsnefnd framlagðri tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Breiðahvarf 5. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /&gt;<o:p&gt;</o:p&gt;</FONT&gt;</SPAN&gt;</I&gt;</B&gt;</P&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;