Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Friðlýsing Skerjafjarðar. Umhverfisstofnun óskar eftir samstarfi við Kópavogsbæ.

Málsnúmer: 0808021

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2522. fundur

Umsögn umhverfisráðs sem óskað var eftir á fundi bæjarráðs 24/9 sl.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð telur rétt að&nbsp;hugmyndinni verði vísað til Samvinnunefndar um svæðisskipulag á höfuðborgarsvæðinu til úrvinnslu.</DIV&gt;</DIV&gt;

02

Umhverfisráð - 482. fundur

Á fundi bæjarráðs 24. september 2009 var lagt fram bréf frá umhverfisstofnun, dags. 16/9, varðandi vinnu við friðlýsingu Álftaness - Skerjafjarðar í samræmi við náttúruverndaráætlun 2004-2008. Í bréfinu er óskað eftir fundi með umhverfisráði vegna málsins. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar hjá umhverfisráði.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<STRONG&gt;Umhverfisráð fagnar framkominni hugmynd en telur nauðsynlegt að&nbsp;hún fái umfjöllun á vettvangi SSH þar sem hún nær til alls Skerjarfjarðarsvæðisins.&nbsp;&nbsp;Umhverfisráð bendir á að nú þegar hefur&nbsp;stór hluti Skerjarfjarðarins verið verndaður með tilvísan í náttúru og umhverfi sbr. yfirlitsuppdrátt sem unninn var af Skipulags- og umhverfissviði Kópavogs. Umhverfisráð telur að hugmyndir um enn frekari verndun fjarðarins séu af þeim toga að&nbsp;þær muni hafa áhrif á&nbsp;skipulag í firðinum og umhverfis&nbsp;hann og hvetur því til umræðu um hugmyndina á vettvangi Samvinnunefndar um svæðisskipulag á höfuðborgarsvæðinu.</STRONG&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

03

Bæjarráð - 2518. fundur

Frá Umhverfisstofnun, dags. 16/9, varðandi vinnu við friðlýsingu Álftaness - Skerjafjarðar í samræmi við náttúruverndaráætlun.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til umhverfisráðs til umsagnar.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;