Þríhnúkagígur.
Málsnúmer: 0812106
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2927. fundur
Í Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, sem staðfest var 24. febrúar 2014 kemur m.a fram að stefnt sé að gera Þríhnúkagíg aðgengilegan almenningi og byggja þar upp aðstöðu til fræðslu og þjónustu ferðammanna í Bláfjallafólkvangi. Á fundi bæjarstjórnar 13. október 2015 var í samræmi við 40. gr. skipulagslaga samþykkt verkefnalýsing deiliskipulagsgerðar við Þríhnúkagíg og nágrennis hans. Í lýsingunni koma m.a fram áherslur bæjaryfirvalda við deiliskipulagsgerðina, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli, matslýsing svo og kynningu og samráð. Á fundi skipulagsráðs 20. ágúst 2018 var lögð fram samantekt dags. 18. júlí 2018 yfir stöðu skipulags fyrir Þríhnúkagíg og nágrenni; niðurstöður í uppfærðu áhættumati vegna fyrirhugaðrar starfsemi við Þríhnúkagíg gagnvart vatnsvernd og grunnvatnsmálum sem og yfirlit yfir þær mótvægisaðgerðir sem lagðar eru til svo hægt sé að gera gíginn aðgengilegan almenningi og byggja þar upp aðstöðu til fræðslu og þjónustu við ferðamenn. Þá er í samantektinni yfirlit yfir næstu skref verkefnisins.
Þríhnúkagígur er á þjóðlendu Seltjarnarneshrepps hins forna skv. úrskurði óbyggðanefndar frá 31. maí 2006 í máli nr. 2/2004, staðfest í Hæstarétti 29. október 2009. Í ljósi þess þarf leyfi Kópavogsbæjar til að nýta land og landsréttindi á svæðinu sbr. 3. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur.
Lögð fram tillaga að auglýsingu um nýtingarleyfi við Þríhnúkagíg en Kópavogsbær hyggst auglýsa eftir aðilum til að nýta gíginn og umhverfi hans í samræmi við ofangreind markmið að gera gíginn aðgengilegan almenningi og byggja þar upp aðstöðu til fræðslu og þjónustu fyrir ferðamenn.
02
Skipulagsráð - 34. fundur
Í Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, sem staðfest var 24. febrúar 2014 kemur m.a fram að stefnt sé að gera Þríhnúkagíg aðgengilegan almenningi og byggja þar upp aðstöðu til fræðslu og þjónustu ferðammanna í Bláfjallafólkvangi. Á fundi bæjarstjórnar 13. október 2015 var í samræmi við 40. gr. skipulagslaga samþykkt verkefnalýsing deiliskipulagsgerðar við Þríhnúkagíg og nágrennis hans. Í lýsingunni koma m.a fram áherslur bæjaryfirvalda við deiliskipulagsgerðina, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli, matslýsing svo og kynningu og samráð. Á fundi skipulagsráðs 20. ágúst 2018 var lögð fram samantekt dags. 18. júlí 2018 yfir stöðu skipulags fyrir Þríhnúkagíg og nágrenni; niðurstöður í uppfærðu áhættumati vegna fyrirhugaðrar starfsemi við Þríhnúkagíg gagnvart vatnsvernd og grunnvatnsmálum sem og yfirlit yfir þær mótvægisaðgerðir sem lagðar eru til svo hægt sé að gera gíginn aðgengilegan almenningi og byggja þar upp aðstöðu til fræðslu og þjónustu við ferðamenn. Þá er í samantektinni yfirlit yfir næstu skref verkefnisins.
Þríhnúkagígur er á þjóðlendu Seltjarnarneshrepps hins forna skv. úrskurði óbyggðanefndar frá 31. maí 2006 í máli nr. 2/2004, staðfest í Hæstarétti 29. október 2009. Í ljósi þess þarf leyfi Kópavogsbæjar til að nýta land og landsréttindi á svæðinu sbr. 3. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur.
Lögð fram tillaga að auglýsingu um nýtingarleyfi við Þríhnúkagíg en Kópavogsbær hyggst auglýsa eftir aðilum til að nýta gíginn og umhverfi hans í samræmi við ofangreind markmið að gera gíginn aðgengilegan almenningi og byggja þar upp aðstöðu til fræðslu og þjónustu fyrir ferðamenn.
Lagt fram og kynnt. Afgreiðslu frestað.
03
Skipulagsráð - 32. fundur
Lögð fram samantekt dags. 18. júlí 2018 yfir stöðu skipulags fyrir Þríhnúkagíg og nágrenni; niðurstöður í uppfærðu áhættumati vegna fyrirhugaðrar starfsemi við Þríhnúkagíg gagnvart vatnsvernd og grunnvatnsmálum sem og yfirlit yfir þær mótvægisaðgerðir sem lagðar eru til svo hægt sé að gera gíginn aðgengilegan almenningi og byggja þar upp aðstöðu til fræðslu og þjónustu við ferðamenn. Þá er í samantektinni yfirlit yfir næstu skref verkefnisins.
Lagt fram og kynnt.
04
Skipulagsráð - 26. fundur
Á fundi skipulagsráðs 5. febrúar 2018 var staða, skipulag og framtíðarstefnumótum skíðasvæðisins í Bláfjöllum kynnt. Þá voru kynntar hugmyndir um að gera Þríhnúkagíg aðgengilegan almenningi og byggja upp aðstöðu til fræðslu og þjónustu við gíginn. Á fundinum voru jafnframt kynntar eftirtaldar greinargerðir:
A.
Uppbygging aðstöðu við Þríhnúkagíg og Bláfjöll. Áhættumat gagnvart vatnsvernd. Mannvit dags. í desember 2017.
B.
Áhættumat vegna starfsemi á skíðasvæði í Bláfjöllum og fyrirhugaðrar starfsemi við Þríhnúkagíg gagnvart vatnsvernd og grunnvatnsmálum. Kópavogsbær febrúar 2018.
Ofangreindar greinargerðir lagðar fram að nýju ásamt greinargerð Vatnaskila: Uppbygging aðstöðu við Þríhnúkagíg og Bláfjöll. Áhættumat gagnvart vatnsvernd, dags í maí 2017.
Greint frá stöðu mála og framhaldi málsins.
Lagt fram og kynnt.
05
Bæjarráð - 2903. fundur
Frá starfshópi Kópavogsbæjar, lögð fram greinargerð varðandi áhættumat vegna starfsemi á skíðasvæði í Bláfjöllun og fyrirhugaðrar starfsemi við Þríhnúkagíg gagnvart vatnsvernd og grunnvatnsmálum.
Jafnframt er lögð fram skýrsla Verkfræðistofunnar Vatnaskil "Þríhnúkagígur og skíðasvæði í Bláfjöllun, dreifingarreikningar vegna áhættumats uppbyggingar og starfsemi" og skýrslan "Uppbygging aðstöðu við Þríhnúkagíg og Bláfjöll, áhættumat gagnvart vatnsvernd" sem unnin var af Mannvit.
Lagt fram.
06
Skipulagsnefnd - 1277. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að lýsingu deiliskipulagsverkefnis og matslýsing vegna deiliskipulags Þríhnúkagígs og nágrennis í Kópavogi dags. í september 2015.$line$$line$Greint frá kynningarfundi sem haldinn var 28.1.2016 með bæjarfulltrúum, fulltrúum í skipulagsnefnd og umhverfis- og samgöngunefnd. Þá lögð fram greinargerð með athugasemdum og ábendingum er bárust á kynningartíma deiliskipulagslýsingar og viðbrögðum við þeim. Er greinargerðin dags. í desember 2015.$line$$line$Lögð fram tillaga skipulagsstjóra að starfshópi skipuðum sérfræðingum á sviði vatnsverndar og gunnvatnsrannsókna á höfuðborgarsvæðinu sem yfirfara og uppfæra áhættumat vegna starfsemi í Bláfjöllum og áformaðra framkvæmda og starfsemi við Þríhnúkagíg.$line$$line$Í samræmi við bókun skipulagsnefndar frá 1272. fundi nefndarinnar þann 15.2.2016 er lögð fram tillaga skipulagsstjóra að sviðsmyndum fyrir mögulegar framkvæmdir við Þríhnúkagíg og fyrir skíðasvæðið í Bláfjöllum.$line$$line$Þá lögð fram tillaga skipulagsstjóra að starfshópi sem skal yfirfara og uppfæra áhættumat vegna starfsemi á skíðasvæði í Bláfjöllum og fyrirhugaðrar starfsemi við Þríhnúkagíg gagnvart vatnsvernd og grunnvatnsmálum í samræmi við 47. gr. í samþykkt um verndun vatnsbóla á höfuðborgarsvæðinu.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu skipulagsstjóra að starfshópi sem mun yfirfara og uppfæra áhættumat vegna skíðasvæðisins í Bláfjöllum og fyrirhugaða starfsemi við Þríhnúkagíg, gagnvart vatnsvernd og grunnvatnsmálum.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkti jafnframt tillögu skipulagsstjóra að sviðsmyndum fyrir mögulegar framkvæmdir við Þríhnúkagíg (sviðsmyndir A, B og C) og fyrir mögulegar framkvæmdir við snjógerð á skíðasvæðinu í Bláfjöllum (sviðsmyndir A og B).$line$$line$Arnþór Sigurðsson óskaði eftir að málinu yrði frestað.$line$Arnþór Sigurðsson var samþykkur frestun.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir tók undir samþykki Arnþórs Sigurðssonar.$line$Theódóra S. Þorsteinsdóttir, Andrés Pétursson, Jón Finnbogason, Sigríður Kristjánsdóttir, Guðmundur G. Geirdal og Kristinn Dagur Gissurarson voru ekki samþykk því að fresta málinu.$line$$line$Theódóra S. Þorsteinsdóttir, Andrés Pétursson, Jón Finnbogason, Sigríður Kristjánsdóttir og Guðmundur G. Geirdal samþykktu tillögur skipulagssjóra.$line$Arnþór Sigurðsson og Kristinn Dagur Gissurarson sátu hjá.
07
Umhverfis- og samgöngunefnd - 74. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að lýsingu deiliskipulagsverkefnis og matslýsing vegna deiliskipulags Þríhnúkagígs og nágrennis í Kópavogi dags. í september 2015.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti tillögu skipulagsstjóra að starfshópi með eftirtöldum viðbótum við hlutverk hópsins sem komi fram í erindisbréfi: hópurinn skoði ólíkar sviðsmyndir, náttúruvá, samráð við SSH, starfstími verði að hámarki 4-6 mánuðir. Tillaga um skipan starfshóps verði lögð fyrir nefndina.
08
Skipulagsnefnd - 1272. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að lýsingu deiliskipulagsverkefnis og matslýsing vegna deiliskipulags Þríhnúkagígs og nágrennis í Kópavogi dags. í september 2015.$line$$line$Greint frá kynningarfundi sem haldinn var 28.1.2016 með bæjarfulltrúum, fulltrúum í skipulagsnefnd og umhverfis- og samgögnunefnd. Þá lögð fram greinargerð með athugasemdum og ábendingum er bárust á kynningartíma deiliskipulagslýsingar og viðbrögðum við þeim. Er greinargerðin dags. í desember 2015.$line$$line$Lögð fram tillaga skipulagsstjóra að starfshópi skipuðum sérfræðingum á sviði vatnsverndar og gunnvatnsrannsókna á höfuðborgarsvæðinu sem yfirfara og uppfæra áhættumat vegna starfsemi í Bláfjöllum og áformaðra framkvæmda og starfsemi við Þríhnúkagíg.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu skipulagsstjóra að starfshópi með eftirtöldum viðbótum við hlutverk hópsins sem komi fram í erindisbréfi: hópurinn skoði ólíkar sviðsmyndir, náttúruvá, samráð við SSH, starfstími verði að hámarki 4-6 mánuðir. Tillaga um skipan starfshóps verði lögð fyrir nefndina.
09
Bæjarráð - 2799. fundur
Frá bæjarlögmanni, dags. 30. nóvember, lögð fram umsögn um tilboð Landsbréfa (ITF) í allt hlutafé í félaginu Þríhnúkum ehf.
Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum að hafna tilboði Landsbréfa og felur bæjarlögmanni að auglýsa hlut Kópavogsbæjar til sölu.
10
Skipulagsnefnd - 1269. fundur
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga að lýsingu deiliskipulagsverkefnis og matslýsing vegna deiliskipulags Þríhnúkagígs og nágrennis í Kópavogi dags. í september 2015. Á fundi skipulagsnefndar 5.10.2015 var samþykkt með tilvísan í 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða lýsingu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu 26.10.2015 og haldinn var opinn kynningarfundur í Hörðuvallaskóla 29.10.2015. Kynningu lauk 30.11.2015. Athugasemd barst frá Jóni Viðari Sigurðssyni, dags. 31.10.2015.$line$$line$Lagt fram minnisblað frá samráðsfundi dags. 29.11.2015.$line$$line$Þá lagðar fram umsagnir frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis, dags. 5.11.2015; Skipulagsstofnun, 6.11.2015; Garðabæ, dags. 9.11.2015; Vegagerðinni, dags. 12.11.2015; Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 13.11.2015; Forsætisráðuneytinu, dags. 17.11.2015; Reykjavíkurborg, íþrótta- og tómstundasvið, dags. 17.11.2015; Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, dags. 20.11.2015; Minjastofnun Íslands, dags. 20.11.2015; Náttúrufræðistofu Kópavogs, dags. 23.11.2015; Heilbrigðiseftirliti Kjósasvæðis, dags. 23.11.2015; Reykjavíkurborg, skipulagsfulltrúi, dags. 23.11.2015; Sigurði Sveini Jónssyni, jarðfræðing, dags. 25.11.2015; Umhverfisstofnun, dags. 18.11.2015; Hafnarfjarðarbæ, dags. 30.11.2015; Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 30.11.2015.
Lagt fram og frestað.
11
Bæjarráð - 2797. fundur
Frá bæjarstjóra, lagt fram kauptilboð sem Landsbréf - Icelandic Tourism Fund I hf. gerir hluthöfum í allt hlutafé félagsins Þríhnúka ehf.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.
12
Bæjarstjórn - 1124. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 6. október, lögð fram tillaga að lýsingu deiliskipulagsverkefnis og matslýsing vegna deiliskipulags Þríhnúkagígs og nágrennis í Kópavogi dags. í september 2015. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða lýsingu og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
13
Bæjarráð - 2791. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 6. október, lögð fram tillaga að lýsingu deiliskipulagsverkefnis og matslýsing vegna deiliskipulags Þríhnúkagígs og nágrennis í Kópavogi dags. í september 2015.$line$Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða lýsingu og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
14
Bæjarráð - 2791. fundur
Frá bæjarlögmanni, dags. 8. október, umsögn vegna forkaupsréttar Kópavogsbæjar í félaginu Þríhnúkum ehf. Í umsögninni kemur fram að Kópavogsbær hafi á fyrri stigum fjárfest í verkefninu til að treysta atvinnuuppbyggingu og ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Síðan þá hafi verkefnið fengið traustari farveg. Ekki sé grundvöllur með vísan til 65. gr. sveitarstjórnarlaga og þróunar verkefnisins að Kópavogsbær fjárfesti frekar í verkefninu. Því er lagt til að bæjarráð hafni forkaupsrétti að 18,6% hlut í Þríhnúkum ehf.
Bæjarráð hafnar forkaupsrétti í félaginu Þríhnúkum ehf.
15
Skipulagsnefnd - 1266. fundur
Lögð fram tillaga að lýsingu deiliskipulagsverkefnis og matslýsing vegna deiliskipulags Þríhnúkagígs og nágrennis í Kópavogi dags. í september 2015.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða lýsingu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
16
Skipulagsnefnd - 1262. fundur
Lögð fram drög að skipulagslýsingu fyrir deiliskipulag Þríhnúkagígs, "Deiliskipulag Þríhnúkagígs og nágrennis Kópavogs: Lýsing deiliskipulagsverkefnis og matslýsing" dags. 15.6.2015.
Frestað.$line$$line$Margrét Friðriksdóttir vék af fundi kl. 18:15
17
Skipulagsnefnd - 1259. fundur
Lagt fram minnisblað VSÓ dags. í maí 2015 þar sem greint er frá stöðu mála. Stefán Gunnar Thors, sviðsstjóri hjá VSÓ mætir á fundinn og gerir grein fyrir málinu.
Hlé var gert á fundi kl. 18:44.$line$$line$Fundi var framhaldið kl. 18:45.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkti að unnin verði drög að skipulagslýsing fyrir deiliskipulag við Þríhnúkagíg sem verði lögð fyrir fund skipulagsnefndar.
18
Bæjarstjórn - 1077. fundur
Tilnefning í stjórn Þríhnúka ehf.
Ármann Kr. Ólafsson tilnefndur í stjórn Þríhnúka ehf. í stað Ómars Stefánssonar.
19
Bæjarráð - 2649. fundur
Ármann Kr. Ólafsson leggur til að Ómar Stefánsson verði fulltrúi bæjarins í stjórn. Fleiri eru ekki tilnefndir.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
20
Bæjarráð - 2646. fundur
Frá bæjarstjóra, dags. 20. júní, tillaga um kaup á hlutafé í Þríhnúkum ehf.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá kaupum á hlutafé í samræmi við tillöguna.
21
Bæjarráð - 2631. fundur
Frá bæjarlögmanni og fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 17/2, umsögn vegna samnings við Þríhnúka ehf.
Lagt fram.
22
Bæjarráð - 2628. fundur
Frá bæjarstjóra, kynning á drögum að samningi v/Þríhnúka
Bæjarráð frestar afgreiðslu á samningsdrögum. Bæjarráð felur bæjarstjóra, fjármála- og hagsýslustjóra og bæjarlögmanni að ganga frá samkomulagi við Þríhnjúka ehf. um aðild Kópavogsbæjar að félaginu skv. fyrri ákvörðun bæjarstjórnar þar um. Bæjarlögmaður og lögfræðingur á umhverfissviði sátu fundinn undir þessum lið.
23
Bæjarráð - 2550. fundur
Frá Þríhnúkum ehf., dags. 7/5, varðandi fjármögnun á áframhaldandi vinnu við aðgengi að Þríhnúkagíg.
<DIV><DIV>Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og skrifstofustjóra almennrar skrifstofu stjórnsýslusviðs til umsagnar.</DIV></DIV>