Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ásbraut 15-17. Beiðni um styrkveitingu vegna viðhalds framkvæmda.

Málsnúmer: 0901202

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2504. fundur

Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, umsögn, dags. 12/5, um erindi íbúa að Ásbraut 15 - 17, sem óska eftir þátttöku í kostnaði vegna ísetningar á þreföldu gleri. Niðurstaða útreikninga á hljóðvist á umræddu svæði gefur til kynna að umrætt svæði kemur til greina vegna hljóðvarnarglers, en ekki er gert ráð fyrir styrkveitingum af því tagi á núgildandi fjárhagsáætlun. Lagt er til að erindinu verði hafnað að svo stöddu, en íbúum bent á að kanna, hvort styrkir verða í boði á næsta ári.

<DIV&gt;Bæjarráð hafnar erindinu og felur sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs að svara því.</DIV&gt;