Bæjarráð - 2504. fundur
Fannborg 2, bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Ritari
- Þórður Clausen Þórðarson
Dagskrá fundar
314. fundur

61. fundur

138. fundur

Liður 2.4.6. Hellisheiðarvirkjun. Bæjarráð óskar eftir gögnum varðandi veitingu starfsleyfisins.

232. fundur

Liður 4. Bæjarráð óskar umsagnar bæjarritara.

84. fundur

Liður 5. Bæjarráð óskar eftir minnisblaði varðandi gjaldtöku vegna umsagnar vegna leyfisveitinga.

101. fundur
1. fundur

475. fundur$line$

Toyota á Íslandi býðst til að lána Kópavogsbæ þrjá tvinnbíla til reynslu í tvær vikur.$line$Umhverfisráð leggur til við bæjarráð að þiggja boðið.

Bæjarráð þiggur boðið og vísar til afgreiðslu bæjarstjóra.

476. fundur
Frá bæjarstjóra, tillögur um rekstur Strætó bs., sem lagðar voru fram á fundi stjórnar SSH, þann 12. maí sl.
Bæjarráð frestar umræðu um tillögurnar til næsta fundar.
Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, umsögn, dags. 13/5, um erindi Skógræktarfélags Kópavogs varðandi lagningu göngustígs í gegnum Guðmundarlund. Umræddur stígur mun í framtíðinni nýtast sem hluti af stígakerfi bæjarins um hverfi í nágrenni Guðmundarlundar og því lagt til að tilboði Skógræktarfélagsins verði tekið og því falið að leggja stíginn nú í sumar.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

13
Reynigrund 70. Montessori Setrið ehf. óskar eftir afnotum af lóðinni við Reynigrund 70 undir leikskóla.
Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, umsögn, dags. 12/5, um erindi Montessori Setursins. Samkvæmt gildandi skipulagi er ekki gert ráð fyrir byggingu af þessari stærð á lóðinni að Reynigrund 70, auk þess sem umferð um hverfið mundi aukast verulega með starfrækslu leikskóla, því er lagt til að erindinu verði hafnað.

Bæjarráð hafnar erindinu og felur sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs að svara bréfritara.

Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, umsögn, dags. 12/5, um erindi íbúa að Nýbýlavegi 80. Niðurstaða útreikninga á hljóðvist á umræddu svæði gefur til kynna að umrætt svæði kemur til greina vegna hljóðvarnarglers, en ekki er gert ráð fyrir styrkveitingum af því tagi á núgildandi fjárhagsáætlun. Lagt er til að erindinu verði hafnað að svo stöddu, en íbúum bent á að kanna, hvort styrkir verða í boði á næsta ári.

Bæjarráð hafnar erindinu og felur sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs að svara því.

Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, umsögn, dags. 12/5, um erindi íbúa að Ásbraut 15 - 17, sem óska eftir þátttöku í kostnaði vegna ísetningar á þreföldu gleri. Niðurstaða útreikninga á hljóðvist á umræddu svæði gefur til kynna að umrætt svæði kemur til greina vegna hljóðvarnarglers, en ekki er gert ráð fyrir styrkveitingum af því tagi á núgildandi fjárhagsáætlun. Lagt er til að erindinu verði hafnað að svo stöddu, en íbúum bent á að kanna, hvort styrkir verða í boði á næsta ári.

Bæjarráð hafnar erindinu og felur sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs að svara því.

Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, umsögn, dags. 12/5, um erindi heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis, varðandi umgengni í hesthúsahverfinu. Lagt er til að efnt verði til hreinsunarátaks á svæðinu. Dreifibréf verði borin í hús í hverfinu og skorað á húseigendur og/eða umráðamenn að hreinsa til í kringum hús sín og fjarlægja rusl, sem þeim tilheyrir hvar sem það er að finna í nágrenninu. Í bréfinu verði áskilinn réttur til þess að láta hreinsa svæðið á kostnað húseigenda ef ekki verður brugðist við áskorun um hreinsun innan tveggja vikna.

Bæjarráð samþykkir að efnt verði til hreinsunar á svæðinu.

Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs og íþróttafulltrúa, umsögn, dags. 13/5, um erindi Sporthússins. Lagt er til við bæjarráð að farið verði í verkið og það unnið af sumarvinnuflokkum eins og hægt er.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs og íþróttafulltrúa, umsögn, dags. 13/5, um erindi Sporthússins. Lagt er til við bæjarráð að gengið verði frá svæðinu í ár og að fjárveitingu verði vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs og íþróttafulltrúa, umsögn, dags. 13/5, um erindi TFK og Sporthússins. Lagt er til við bæjarráð að gengið verði frá svæðinu í ár og að fjárveitingu verði vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

20
Dalsmári 9-11, óskað eftir heimild til að byggja ný bílastæði fyrir viðskiptavini Sporthússins.
Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs og íþróttafulltrúa, umsögn, dags. 13/5, um erindi Sporthússins. Lagt er til við bæjarráð að umsagnaraðilum verði falið að ganga frá samningi sem lagður verði fyrir bæjarráð.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

Frá umsjónarmanni fasteigna, umsögn, dags. 12/5, um erindi frá íbúa að Hlíðarhjalla 73, vegna hljóðleka, en íbúðin er í eigu húsnæðisnefndar Kópavogs. Þegar hefur verið brugðist við erindinu m.a. settir þéttilistar á innihurðakarma. Ekki er annað að sjá en frágangur íbúðarinnar sé í samræmi við þær kröfur sem gerðar voru þegar húsið var byggt.

Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs að svara erindinu.

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 13/5. Þann 5. maí voru opnuð tilboð í þökur og þökulagningu í Kópavogi 2009, skv. útboðsgögnum gerðum af Verkfræðistofunni Eflu ehf., dags. í apríl 2009. Útboðið var opið. Lagt er til við bæjarráð að eftirfarandi tiloðum verði tekið: Túnþökuþjónustan ehf. í knattpyrnuvallarþökur, túnþökur og úthagaþökur, Grasvinafélagið ehf., í golfvallarþökur og Túnþökusala Oddsteins ehf. í lyngþökur.

Bæjarráð samþykkir tillögu deildarstjóra framkvæmdadeildar.

Frá sviðsstjórum framkvæmda- og tæknisviðs og skipulags- og umhverfissviðs, umsögn, dags. 11/5, varðandi framlengingu stöðuréttar sumarbústaðar að Vatnsendabletti 206. Lagt er til að erindinu verði hafnað og ítrekuð verði krafa bæjarins um að bústaðurinn verði fjarlægður án frekari tafa.

Bæjarráð hafnar erindinu og felur sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs að svara erindinu.

24
Vatnsendablettur 134, breytt deiliskipulag og

0701106 - Vatnsendablettur 241a, aðal- og deiliskipulag breyting.
Sviðsstjórar framkvæmda- og tæknisviðs, skipulags- og umhverfissviðs og bæjarlögmaður mættu til fundarins skv. ákvörðun bæjarráðs á síðasta fundi þar um. Gerðu þeir grein fyrir stöðu málsins.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkti á fundi sínum þann 5. maí sl. að teknar verði upp viðræður við landeiganda með það að markmiði að Kópavogsbær eignist umrætt land. Bæjarráð frestaði afgreiðslu tillögunnar á síðasta fundi.

Bæjarráð felur ofangreindum að ganga til viðræðna við landeiganda varðandi Vatnsendablett 241a og 134 og gera bæjarráði grein fyrir viðræðunum á fundi bæjarráðs 4. júní n.k.

Frá starfsmannastjóra, yfirmanni þjónustudeildar fatlaðra og verkefnastjóra tómstundamála, dags. 30/4, lagðar fram tillögur varðandi atvinnutengt sumartilbð fyrir fötluð ungmenni 16 - 20 ára í Kópavogi. Lagt er til að bæjarráð samþykki tillöguna.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
Tillögur að ráðningum í sumarstörf, sem frestað var á síðasta fundi.

Bæjarráð samþykkir tillögurnar.

Jafnframt lagðar fram tillögur frá æskulýðsfulltrúa um ráðningar leiðbeinenda á námskeið ÍTK.

Bæjarráð samþykkir tillögurnar.

Tillögur að ráðningu 22 einstaklinga í skapandi sumarstörf, sem frestað var á síðasta fundi.
Bæjarráð samþykkir tillögurnar.
Frá bæjarritara, dags. 12. maí, tillaga um formlega skipan Litla hóps, forvarnateymis. Teymið tryggir víðtæka samvinnu þeirra sem koma að málefnum unglinga í bæjarfélaginu. Lagt er til að forvarnafulltrúa verði falið að kalla eftir tilnefningum og stýra starfi hópsins.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
Frá bæjarritara, lagt fram svar við fyrirspurn Samfylkingarinnar frá 8. apríl sl.

Kl. 17. 38 var gert fundarhlé og fundi síðan framhaldið kl. 17.51.

Bæjarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og VG lögðu fram eftirfarandi tillögu:

"Bæjarráð Kópavogs samþykkir að endurskoðendum bæjarins verði falið að fara yfir viðskipti Kópavogsbæjar við fyrirtækið Frjálsa miðlun árin 2003 - 2008 að báðum árum meðtöldum. Þeir skili greinargerð til bæjarráðs og leggi mat á hvort að umrædd viðskipti hafi verið í samræmi við reglur Kópavogsbæjar um innkaup og hvort ákvarðanataka hafi verið í samræmi við góða stjórnsýslu.

Guðríður Arnardóttir, Hafsteinn Karlsson, Guðbjörg Sveinsdóttir."

Hlé var gert á fundi kl. 17.57. Fundi var fram haldið kl. 18.03. Bæjarráð samþykkir framkomna tillögu.

Frá bæjarlögmanni, dags. 13/5, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 8. maí 2009, þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar frá Pönnu Pizzum ehf., kt. 530695-22479, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík um rekstarleyfi fyrir veitingastaðinn Pizzahut í Smáralind að Hagasmára 1, 201 Kópqavogi, en umsóknin fellur undir flokk II, sbr. 4. gr. laga nr. 85/2007.$line$$line$$line$

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar er innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagins segir til um.

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 5. maí 2009, þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar Adesso ehf., kt. 500102-3060, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, um rekstrarleyfi fyrir veitingastaðinn Adesso í Smáralind að Hagasmára 1 í Kópavogi, en umsóknin fellur undir flokk II, sbr. 4. gr. laga nr. 85/2007.$line$$line$$line$
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar er innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagins segir til um.
Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 11. maí 2009, þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar Rósaam ehf., kt. 631008-0110, Austurstræti 8-10, 101 Reykjavík, um rekstrarleyfi fyrir veitingastaðinn SPOT að Bæjarlind 6 í Kópavogi, en umsóknin fellur undir flokk III, sbr. 4. gr. laga nr. 85/2007.$line$$line$
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar er innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagins segir til um.

Frá Margréti Gunnarsdóttur, dags. 6/5, varðandi sumarvinnu dóttur hennar.

Vísað til umsagnar forstöðumanns vinnuskólans.

Frá Þóru Arnórsdóttur, dags. 2/5, sótt um styrk til gerðar heimildaþáttar um Dalai Lama.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

Frá ÍSÍ, dags. 29/4, samþykktir frá 69. íþróttaþingi ÍSÍ, sem haldið var 17. og 18. apríl sl.

Lagt fram.

Frá Ágústi Egilssyni og Soffíu Jónasdóttur, dags. 11/5, óskað niðurfellingar aukagatnagerðagjalda vegna byggingar einbýlishúss að Akrakór 7.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs.

Frá Kjósarhreppi, dags. 11/5, varðandi svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins er varðar tvöföldun Suðurlandsvegar frá Hólmsá að Hveragerði. Engar athugasemdir voru gerðar við téða breytingu.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.

Frá samgönguráðuneytinu, Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dags. 8/5, tilkynning um endanlega úthlutun framlags vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2009.

Vísað til sviðsstjóra fræðslusviðs og fjármála- og hagsýslustjóra til afgreiðslu.

Frá Icefitness ehf., dags. í maí, þakkað fyrir stuðning við Skólahreysti 2008 og óskað eftir styrk að upphæð kr. 200.000 til starfsins 2009.

Vísað til umsagnar bæjarritara.

Frá Guðrúnu Atladóttur, dags. 11/5, óskað eftir húsnæði án endurgjalds, virka daga frá kl. 8.00 - 8.30 að morgni til stuttrar samveru fyrir bæjarbúa til eflingar samkenndar og jákvæðni á þessum erfiðu tímum.

Vísað til afgreiðslu bæjarstjóra.

Frá Kjartani Má Sigurgeirssyni, dags. 6/5, sótt um leyfi fyrir að framkvæmdir við Skógarlind 1 geti tekið allt að fimm ár frá undirritun samnings, en samþykkt kauptilboð í eignina liggur fyrir.

Vísað til umsagnar sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs.

Frá Byggingarfélaginu Gusti ehf., dags. 8/5, lóðinni að Kvistaþingi 8, 10 og 12 skilað inn.
Lagt fram.
Frá Erlu Jóhannsdóttur og Sigurði Sveinssyni, dags. 6/5, lóðinni að Kelduþingi 30 skilað inn.
Lagt fram.
Frá Jóni Ögmundssyni og Kristínu S.R. Guðmundsdóttur, dags. 28/4, lóðinni að Örvasölum 1 skilað inn.
Lagt fram.
Frá Sorpu bs., ársskýrsla 2008.
Lagt fram.