Til baka í fundargerðir
Nýbýlavegur 80. Óskað eftir girðingu og hljóðvarnargleri vegna hljóðmengunar.
Málsnúmer: 0902144
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2504. fundur
Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, umsögn, dags. 12/5, um erindi íbúa að Nýbýlavegi 80. Niðurstaða útreikninga á hljóðvist á umræddu svæði gefur til kynna að umrætt svæði kemur til greina vegna hljóðvarnarglers, en ekki er gert ráð fyrir styrkveitingum af því tagi á núgildandi fjárhagsáætlun. Lagt er til að erindinu verði hafnað að svo stöddu, en íbúum bent á að kanna, hvort styrkir verða í boði á næsta ári.
<DIV>Bæjarráð hafnar erindinu og felur sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs að svara því.</DIV>
02
Bæjarráð - 2492. fundur
Frá íbúum að Nýbýlavegi 80, dags. 11/2, óskað eftir girðingu og hljóðvarnargleri vegna hljóðmengunar.
<DIV>Bæjarráð óskar umsagnar sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs.</DIV>