Heimsendi, vettvangsferð um hesthúsahverfið.
Málsnúmer: 0902277
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2504. fundur
Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, umsögn, dags. 12/5, um erindi heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis, varðandi umgengni í hesthúsahverfinu. Lagt er til að efnt verði til hreinsunarátaks á svæðinu. Dreifibréf verði borin í hús í hverfinu og skorað á húseigendur og/eða umráðamenn að hreinsa til í kringum hús sín og fjarlægja rusl, sem þeim tilheyrir hvar sem það er að finna í nágrenninu. Í bréfinu verði áskilinn réttur til þess að láta hreinsa svæðið á kostnað húseigenda ef ekki verður brugðist við áskorun um hreinsun innan tveggja vikna.
<DIV>Bæjarráð samþykkir að efnt verði til hreinsunar á svæðinu.</DIV>
02
Bæjarráð - 2493. fundur
Frá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, dags. 23/2, tilmæli um að hreinsa hesthúsahverfið.
<DIV>%0D<DIV>Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs.</DIV></DIV>