Skólanefnd MK - 6, 13/11
Málsnúmer: 0905268
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1005. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

02
Bæjarráð - 2526. fundur
6. fundur

03
Bæjarráð - 2518. fundur
5. fundur

Liður 1. Fulltrúar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi tillögu til ályktunar:

"Bæjarráð Kópavogs harmar þá ákvörðun menntamálaráðuneytisins að við ákvörðun fjárheimilda 2010 verði ekki gert ráð fyrir ígildum nemenda grunnskóla sem stunda nám í einstökum greinum framhaldsskóla samhliða grunnskólanámi sínu. Þetta hefur þær afleiðingar í för með sér að menntaskólarnir geta ekki frá n.k. áramótum tekið inn nemendur í grunnskólum. Í 5. mgr. 26. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 segir: Grunnskólanemendur eiga rétt á að stunda nám í einstökum námsgreinum á framhaldsskólastigi meðan þeir eru í grunnskóla enda hafi þeir sýnt fullnægjandi færni.

Ekki verður annað séð en að um óverulegan sparnað sé að ræða þar sem þeir grunnskólanemar sem ljúka áfanga í menntaskóla þurfa eðli málsins samkvæmt ekki að sitja í viðkomandi kúrsum þegar þeir hefja nám á framhaldsskólastigi. Það er gegn allri hugmyndafræði um einstaklingsmiðað nám að skerða möguleika grunnskólanema með þessum hætti og koma þannig í veg fyrir að hæfileikar nemenda fái framgang sem skyldi. Því skorar bæjarráð Kópavogs á menntamálaráðherra að endurskoða þessa ákvörðun sína.

Ármann Kr. Ólafsson, Ómar Stefánsson, Sigurrós Þorgrímsdóttir."

Hlé var gert á fundi kl. 15:42. Fundi var framhaldið kl. 15:50.

Fulltrúar Samfylkinar og VG lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Það má öllum vera ljósar þær aðstæður sem nú eru uppi í þjóðfélaginu. Fjármagn af skornum skammti og verulegur niðurskurður nauðsynlegur í rekstri allra opinberra stofnana. Bæjarstjórn Kópavogs hefur sjálf þurft að grípa til niðurskurðar í grunnskólum bæjarins á þessu ári sem án efa kemur niður á möguleikum skólanna til að sinna einstaklingsþörfum nemenda. Við þessar aðstæður er mikilvægast að framhaldsskólarnir geti boðið öllum sem lokið hafa grunnskólaprófi örugga skólavist.

Guðríður Arnardóttir, Hafsteinn Karlsson, Ólafur Þór Gunnarsson."

Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ég skil vel að fulltrúar Samfylkingarinnar og VG verji ríkisstjórnina. Ekki er vanþörf á.

Ármann Kr. Ólafsson."

Bæjarráð samþykkir tillöguna með þremur atkvæðum en tveir greiddu atkvæði gegn henni.

04
Bæjarráð - 2512. fundur
4. fundur

05
Bæjarráð - 2508. fundur
1. fundur
06
Bæjarráð - 2508. fundur
2. fundur
07
Bæjarráð - 2508. fundur
3. fundur