Frestað mál. Undirbúningsnefnd um byggingu Óperuhúss
Málsnúmer: 0909154
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2522. fundur
Stefán Baldursson, óperustjóri, mætir til fundar.

Tekin til afgreiðslu tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar, sem lögð var fram á fundi bæjarráðs 10. september sl. mál nr. 0909154. Bæjarráð samþykkir tillögu um að undirbúningsnefnd um byggingu Óperuhúss skuli lögð niður með þremur samhljóða atkvæðum.

Ólafur Þór Gunnarsson, áherynarfulltrú VG, óskaði fært til bókar að hann styddi framlagða tillögu.

Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Forsenda þess að Kópavogsbær hugðist byggja óperuhús var sú að Íslenska óperan fékk ekki aðstöðu í nýju tónlistarhúsi í Reykjavík. Ljóst má vera miðað við þá stöðu sem upp er komin að Óperan getur nú allt í einu farið inn í nýtt Tónlistarhús án mikils tilkostnaðar. Því blasir við að það hljóta að hafa verið mistök að gera ekki ráð fyrir Óperunni þar frá upphafi.

Ármann Kr. Ólafsson.""

02
Bæjarráð - 2518. fundur
Frá bæjarritara, mál sem ákveðið var í bæjarstjórn 22/9 sl. að vísa aftur til bæjarráðs, tillaga um að undirbúningsnefnd um byggingu Óperuhúss verði lögð niður.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

03
Bæjarráð - 2516. fundur
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram eftirfarandi tillögu:$line$""Í ljósi aðstæðna sem öllum eru kunnugar er ljóst að fyrirhuguð áform um byggingu Óperuhúss eru að engu orðin. Íslenska Óperan mun fá samastað í nýju tónlistarhúsi í Reykjavík. Áætlanir um að fjármagna byggingu hússins með fjárframlögum einkaaðila munu ekki ná fram að ganga sökum aðstæðna í efnahagslífi þjóðarinnar.$line$Undirbúningsnefnd um byggingu Óperuhúss skipuð af bæjarráði skuli lögð niður nú þegar.$line$Guðríður Arnardóttir, Hafsteinn Karlsson""

Hlé var gert á fundi kl. 16.51. Fundi var fram haldið kl. 16.52.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með þremur atkvæðum, tveir fulltrúar sátu hjá.

Ólafur Þór Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi VG, óskaði fært til bókar að hann styddi tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar.