Svar við fyrirspurn frá síðasta fundi
Málsnúmer: 0910014
Ferill máls
01
Skólanefnd - 16. fundur

Anna Birna lagði fram bréf, dags. 21. sept. 2009, með svörum við fyrirspurn frá síðasta fundi og fór yfir efnisatriði þess.

Málið rætt.

Hlé var gert á fundi kl, 18:15

Fundur aftur settur kl. 18:30

Garðar Vilhjálmsson og Álfheiður Ingimarsdótti, fulltrúar minnihlutans í skólanefnd og Helgi Jóhannesson, áheyrnarfulltrúi VG lögðu fram eftirfarandi bókun:

""Í ljósi þróunar mála varðandi ráðningu skólastjóra Smáraskóla til afleysinga er eftirfarandi bókað:

Þeim vinnubrögðum sem voru viðhöfð við ráðningu skólastjóra til afleysingar í Smáraskóla er mótmælt og er ljóst að skólanefnd hefur fengið takmarkaðar, misvísandi og jafnvel rangar upplýsingar við umfjöllun um málið. Einnig er ljóst að starfsmannastefnu Kópavogsbæjar hefur ekki verið fylgt í þessu máli hvað varðar framkomu skólaskrifstofu við starfsmenn Smáraskóla.

Því er lagt til að skólanefnd beiti sér fyrir að mótaðar verði reglur um afleysingu og staðgengla skólastjórnenda í grunnskólum Kópavogs.""

Meirihluti skólanefndar lagði fram eftirfarandi bókun:

""Meirihluti skólanefndar getur ekki tekið undir þá gagnrýni að starfsmannastefnu Kópavogsbæjar hafi ekki verið fylgt varðandi ráðningu í starf skólastjóra Smáraskóla til afleysingar. Meirihlutinn bendir á að bæjarráð sér um ráðningu skólastjóra og staðgengla þeirra.""