Til baka í fundargerðir
Breiðahvarf 1. Óskað eftir heimild til að framselja lóðarréttindi.
Málsnúmer: 0912690
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2531. fundur
Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 21/12, varðandi Breiðahvarf 1, vegna óskar um heimild til að framselja lóðarréttindi.$line$Lagt er til að erindið verði samþykkt, en tekið verði fram að ákvæði 4. gr. lóðarleigusamnings um byggingartíma gildi áfram óbreytt og að áskilinn sé allur réttur til þess að beita tiltækum úrræðum til að knýja fram efndir á þessu ákvæði, hvort sem er gagnvart núverandi lóðarhafa eða nýjum lóðarhafa verði eignin framseld.
<DIV><DIV>Bæjarráð samþykkir tillögu skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs og felur honum að svara erindinu.</DIV></DIV>