Gulaþing 3, breytt deiliskipulag
Málsnúmer: 0912700
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1013. fundur

Bæjarstjórn hafnar erindinu með fimm greiddum atkvæðum. Fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.

Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.

02
Bæjarráð - 2542. fundur

Hlé var gert á fundi kl. 16:42. Fundi var fram haldið kl. 16:53.

Bæjarráð hafnar erindinu. Bæjarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sátu hjá við afgreiðslu málsins og lögðu fram eftirfarandi bókun:

"19. maí 2009 samþykkti bæjarráð sambæralega breytingu í Gulaþingi 1 þar sem engar athugasemdir bárust. Nú er þessu máli hafnað á grundvelli innsendra athugasemda. Slík meðferð leiðir hugann að því hvort jafnræðissjónarmiða sé gætt og hvort bæjaryfirvöld ætli að gefa frá sér skipulagsvaldið. Við teljum að sveitarstjórn beri að vera meira afgerandi í afstöðu sinni til skipulagsbreytinga í stað þess að byggja ákvarðanir sínar eingöngu á innsendum athugasemdum. Þó auðvitað beri að taka tillit til vel rökstuddra athugasemda, ætti ákvörðun sveitarstjórnar að byggjast á skýrri stefnu í skipulagsmálum.

Guðríður Arnardóttir, Hafsteinn Karlsson"

Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.

03
Skipulagsnefnd - 1176. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 19. janúar 2010 er lagt fram erindi lóðarhafa nr. 3 við Gulaþing. Í erindi felst ósk um breytt deiliskipulag lóðarinnar, að hafa tvær íbúðir í húsinu í stað einnar. Að aukaíbúð verði leyfð á neðri hæð hússins. Bygging færi að nokkru út fyrir innri byggingarreit, en er öll innan ytri byggingarreits. Grunnflötur hússins með bílageymslu yrði um 150 m² og flatamal húss um 260 m² eða um 100 m² minni en gildandi skipulagsskilmálar kveða á um. Í tillögunni er gert ráð fyrir að fjölga bílastæðum úr 3 í 5.$line$Meðfylgjandi: Skýringaruppdráttur dags. 16. des. ´09 í mkv. 1:500 og 1:200.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að senda erindið í kynningu til lóðarhafa Gulaþingi 1 til 60. Hólmaþing 1, 2, 3 og 4. Heiðaþing 1, 2, 3, 4, 5, 6 og 8.$line$Kynning fór fram 26. janúar til 26. febrúar 2010. Athugasemdir bárust. $line$Á fundi skipulagsnefndar 16. mars 2010 er erindið lagt frá á ný ásamt umsögn bæjarskipulags dags. 16. mars 2010 um erindið og innsendar athugasemdir.

Formaður skipulagsnefndar og sviðsstjóri viku af fundi við umfjöllun um erindið.

Skipulagsnefnd hafnar erindinu með vísan í framkomnar athugasemdir og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.