Barnamenningarhátíð 2017
Málsnúmer: 1004059
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 62. fundur
Forstöðumaður Listhúss óskar eftir framlagi úr lista- og menningarsjóði til að halda barnamenningarhátíð næsta vor,samhliða öðrum barnamenningarhátíðum á höfuðborgarsvæðinu, en ráðgert er að hefja skipulagningu og undirbúning sem fyrst.
Lista- og menningarráð ákveður að halda barnamenningarhátíð samhliða þeirri sem er í Reykjavík og öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu á næsta ári en sveitarfélögin héldu barnamenningarhátíðir á sama tíma á þessu ári og reyndist það vel.
02
Lista- og menningarráð - 17. fundur
Kostnaðaráætlun fyrir næstu þrjú árin lögð fram.
Ráðið fellst á að gera samning til þriggja ára upp á 1,5 milljónir króna ár hvert og að fela lögmanni Kópavogsbæjar að gera drög að samningi við Pamelu de Sensi.
03
Lista- og menningarráð - 9. fundur
Formaður ræðir hvernig styrkja megi Ormadaga svonefnda á menningartorfunni en slíkir dagar voru haldnir við góðan orðstír á menningardögum bæjarins í vor.
Ráðið lítur jákvætt á það að styrkja þær stofnanir sem vilja taka þátt í Ormadögum og hvetur um leið allar stofnanir, skóla og leikskóla til að taka þátt. Ráðið óskar jafnframt eftir samstarfi við forvarnar- og frístundanefnd um mögulega aðkomu að verkefninu.
04
Lista- og menningarráð - 356. fundur

Lista- og menningarráð samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 500.000.

05
Lista- og menningarráð - 355. fundur

Erindinu er frestað.

06
Lista- og menningarráð - 354. fundur

Lista- og menningarráð frestar afgreiðslu erindisins.