Grenndargarðar til matjurtaræktar í landi Kópavogs
Málsnúmer: 1004432
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2551. fundur
Frá garðyrkjustjóra, drög að samkomulagi milli Kópavogsbæjar kt. 700169-3759 annars vegar og Garðyrkjufélags Íslands kt. 570169-6539 hins vegar um tilraunaverkefnið "Grenndargarðar til matjurtaræktar í þéttbýli"

Bæjarráð samþykkir drög að samkomulagi.

02
Bæjarráð - 2549. fundur
Frá garðyrkjustjóra, umsögn dags. 4/5, sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 29/4, um erindi Garðyrkjufélags Íslands, varðandi samstarf um rekstur garðlanda í Kópavogi. Lagt er til að garðyrkjustjóra verði falin afgreiðsla málsins og að samningsdrög verði lögð fyrir bæjarráð síðar í maímánuði.

Bæjarráð felur garðyrkjustjóra afgreiðslu málsins og að samningsdrög verði lögð fyrir bæjarráð.

03
Bæjarráð - 2547. fundur
Frá Garðyrkjufélagi Íslands, dags. 27/4, óskað eftir samstarfssamningi um frekari garðlönd til matjurtaræktunar.

Bæjarráð vísar erindinu til garðyrkjustjóra til umsagnar.