Tillaga um úthlutun kennslutímamagns
Málsnúmer: 1005092
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2554. fundur
Rekstrarstjóri fræðslusviðs mætti til fundar og gerði grein fyrir máli sem frestað var á fundi bæjarráðs 10/6 sl., varðandi fyrirhugaða úthlutun kennslutímamagns, þar sem fram kemur að ekki verði mögulegt að veita sama þjónustustig og áður vegna aðhaldsaðgerða í útgjöldum bæjarins.

Bæjarráð samþykkir viðbótarúthlutun allt að 25 millj. kr. til sérkennslu vegna fjölgunar á nemendum með miklar sérþarfir skv. tillögu yfirmanns sérfræðiþjónustu og vísar henni til endurskoðunar fjárhagsáætlunar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óska bókað að þeir telji eðlilegt að málið verði afgreitt við endurskoðun fjárhagsáætlunar. Þetta er kostnaður upp á 25 millj. á ársgrundvelli en nú þegar er fjárhagsáætlun ársins brostin þar sem staðgreiðsla er á annað hundrað millj. lægri en áætlað var, mikill fjöldi ungmenna í sumarstörfum hefur í för með sér viðbótarkostnað upp á annað hundrað milljónir króna. Einnig er ljóst að kostnaður við tónlistarskóla mun fara fram úr fjárhagsáætlun um tugi milljóna króna og er þá ekki allt talið.

02
Bæjarráð - 2553. fundur
Frá sviðsstjóra fræðslusviðs, dags. 3/6, umsögn varðandi fyrirhugaða úthlutun kennslutímamagns, þar sem fram kemur að ekki verði mögulegt að veita sama þjónustustig og áður vegna aðhaldsaðgerða í útgjöldum bæjarins.

Bæjarráð óskar eftir að sviðsstjóri fræðslusviðs mæti til næsta fundar bæjarráðs vegna málsins.

03
Bæjarráð - 2549. fundur
Bæjarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram eftirfarandi tillögu:

"Bæjarráð samþykkir að úthlutun kennslutímamagns fyrir næsta skólaár vegna nemenda með miklar sérþarfir verði óbreytt frá því sem verið hefur. Þar sem að við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2010 var ekki reiknað með að nemendum með miklar sérþarfir fjölgaði eins og raunin hefur orðið, verður að finna leið til að auka við fjármagn til þessa liðar svo úthlutun verði í samræmi við þarfir.

Guðríður Arnardóttir, Hafsteinn Karlsson."

Bæjarráð vísar tillögunni til sviðsstjóra fræðslusviðs til umsagnar.