Reglur um rafræna skjalavörslu og Handbók um skjalavörslu sveitarfélaga
Málsnúmer: 1006105
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2557. fundur
Frá bæjarritara, dags. 20/7, umsögn um lið 2 í fundargerð stjórnar Héraðsskjalasafns frá 11/3 sl., sem tekin var fyrir í bæjarstjórn 8/6 og vísað til bæjarráðs til úrvinnslu, en bæjarráð vísaði þessum lið til umsagnar bæjarritara á fundi sínum þann 16/6 sl. Lagt er til að bæjarráð beini því til stjórnar Héraðsskjalasafns að það leiti samninga við Þjóðskjalasafn um að það sinni viðtöku og varðveislu rafrænna skjalasafna sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir að beina því til stjórnar Héraðsskjalasafns að það leiti samninga við Þjóðskjalasafn um að það sinni viðtöku og varðveislu rafrænna skjalasafna sveitarfélagsins.

02
Bæjarráð - 2554. fundur
Mál varðandi reglur um rafræna skjalavörslu og handbók um skjalavörslu sveitarfélaga, sem vísað var til bæjarráðs til úrvinnslu, á fundi bæjarstjórnar 8/6 sl. sbr. lið 13 í fundargerð.$line$$line$

Vísað til umsagnar bæjarritara.

03
Bæjarstjórn - 1018. fundur

Til máls tók Flosi Eiríksson um lið 2 og lagði til að tillögu stjórnar Héraðsskjalasafns yrði vísað til bæjarráðs til úrvinnslu. Þá tóku til máls Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri, Sigurrós Þorgrímsdóttir, Guðríður Arnardóttir og Sigurrós Þorgrímsdóttir um lið 2.

Forseti bar undir fundinn tillögu Flosa Eiríkssonar um að vísa tillögu undir lið 2 til bæjarráðs til frekari úrvinnslu. Var það samþykkt með tíu samhljóða atkvæðum.