Ráðning bæjarstjóra 2010
Málsnúmer: 1006287
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1019. fundur
Til máls tók Guðríður Arnardóttir og gerði tillögu um ráðningu Guðrúnar Pálsdóttur í starf bæjarstjóra.

Ráðning bæjarstjóra fór fram með leynilegri atkvæðagreiðslu.

Guðrún Pálsdóttir hlaut sjö atkvæði en fjórir atkvæðaseðlar voru auðir.

Forseti færði fráfarandi bæjarstjóra, Gunnsteini Sigurðssyni, þakkir bæjarstjórnar. Þá tók Gunnsteinn Sigurðsson til máls og færði nýkjörinni bæjarstjórn óskir um góð störf. Því næst tók til máls Ármann Kr. Ólafsson og færði hann fráfarandi bæjarstjóra þakkir og nýráðnum bæjarstjóra óskir um velfarnað í starfi.

Þá tók Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, til máls og þakkaði það traust sem bæjarstjórn hefur sýnt henni með ráðningu í starf bæjarstjóra.

Því næst tók Guðríður Arnardóttir til máls og færði nýráðnum bæjarstjóra hamingjuóskir með ráðninguna. Þá tók til máls Ómar Stefánsson og færði hann nýráðnum bæjarstjóra hamingjuóskir með ráðninguna.