Svæðisskipulag, óveruleg breyting. Sjúkrahús Mosfellsbæ.
Málsnúmer: 1007054
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2559. fundur
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir afgreiðsluna. Gunnar Ingi Birgisson situr hjá við afgreiðslu málsins.

02
Skipulagsnefnd - 1181. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 17. ágúst 2010 var lagt fram erindi Mosfellsbæjar dags. 1. júlí 2010. Erindið var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs 8. júlí 2010 og vísað til skipulagsnefndar. Erindið varðar breytingu á Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins skv. 2. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingartillagan er vegna áforma um að reisa sérhæfða heilbrigðisstofnun og hótel í tengslum við hana. Á árinu 2009 var kynnt tillaga að breytingu á Svæðisskipulaginu af sömu ástæðu og er sú tillaga nú dregin til baka. Breyting felst í því að tillagan gerir ráð fyrir að á tímabilinu 1998 - 2024 aukist atvinnuhúsnæði í Mosfellsbæ í 338.000 m² í stað 306.000 m², aukning um 32.000 m² sbr. gildandi töflu 3.2 í greinargerð Svæðisskipulagsins.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdi við erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.

03
Bæjarráð - 2556. fundur
Frá Mosfellsbæ, dags. 1/7, tillaga að óverulegri breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins - sjúkrahús í Sólvallalandi.

Vísað til skipulagsnefndar.