Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kópavogshöfn. Umsókn um leyfi til að reka veitingaskip

Málsnúmer: 1007091

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2556. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 7/7, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags. 29. júní 2010 þar sem hann óskar eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar Hrefnuveiðimanna, kt. 640506-1800, um rekstrarleyfi til að reka veitingaskip, Hrafnreyði KÓ 100 í Kópavogshöfn, en umsóknin fellur undir flokk II, sbr. 4. gr. laga nr. 85/2007. Um er að ræða ferðir frá Kópavogshöfn með ferðamenn og aðra hópa í 3 - 6 klst. ferðir og veitingar veittar á siglingu um Faxaflóa.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning er innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.&nbsp; Samþykktin er með þeim fyrirvara að skilyrði fyrir rekstrarleyfi séu uppfyllt að öðru leyti.&nbsp; </DIV&gt;</DIV&gt;