Fífuhvammsvegur / Arnarnesvegur hringtorg.
Málsnúmer: 1007102
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1023. fundur
Lagt er til að gengið verði til samninga við Arnarverk ehf., en ágreiningur var um málið í bæjarráði 7/10, sbr. lið 37 í fundargerð.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með sex atkvæðum gegn fimm.

02
Bæjarráð - 2564. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 27/9, opnuð tilboð í verkið Arnarnesvegur - Fífuhvammsvegur TORG. Útboðið var opið og bárust eftirfarandi tilboð í verkið:$line$$line$ÍAV hf 143.984.524 kr.$line$Háfell ehf. 128.183.005 kr.$line$Suðurverk hf. 118.569.396 kr.$line$Loftorka ehf. 121.621.250 kr.$line$Arnarverk ehf. 105.316.710 kr.$line$Steinberg ehf. ógilt$line$Glaumur ehf. 127.496.100 kr.$line$$line$Kostnaðaráætlun 115.254.300 kr.$line$$line$$line$Lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda, Arnarverk ehf.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram eftirfarandi tillögu:

"Undirritaðir leggjast gegn því að farið verði í þessa framkvæmd miðað við fjárhagsstöðu bæjarins. Það er ljóst að fjármögnun þessa verks verður ekki gerð nema með auknum lántökum. Þetta er góð framkvæmd sem við hefðum stutt ef fjárhagsstaða bæjarins væri önnur. Framkvæmdina átti að fjármagna með tekjum af sölu byggingarréttar. Þess vegna leggjum við til að þessari framkvæmd verði frestað.

Gunnar Ingi Birgisson, Ármann Kr. Ólafsson"

Hlé var gert á fundi kl. 11:35. Fundi var fram haldið kl. 11:43.

Fulltrúar meirihlutans í bæjarráði lagði fram eftirfarandi bókun:

"Meirihlutinn ítrekar að gert er ráð fyrir framkvæmdinni í fjárhagsáætlun. Hér er um nauðsynlega samgönguúrbót að ræða sem mun auka umferðaröryggi en gatnamótin uppfylla í dag ekki kröfur þar um. Til framtíðar er hagkvæmara að ráðast í varanlega lausn í stað bráðabirgða aðgerða. Þá er framkvæmdin nauðsynleg forsenda fyrirhugaðra framkvæmda við Arnarnesveg, sem eru á vegaáætlun árið 2012. Framkvæmdin er að auki atvinnuskapandi.

Hjálmar Hjálmarsson, Pétur Ólafsson, Guðný Dóra Gestsdóttir, Rannveig Ásgeirsdóttir"

Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins var felld með þremur atkvæðum en tveir greiddu atkvæði með henni.

Tillaga um að leita samninga við lægstbjóðanda samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur.

03
Bæjarráð - 2556. fundur
Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 5/7, óskað heimildar bæjarráðs til að bjóða út framkvæmdir við hringtorg á mótum Fífuhvammsvegar og Arnarnesvegar.

Bæjarráð samþykkir útboð með fyrirvara um að kostnaðarhlutdeild Vegagerðarinnar verði staðfest.