Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Heiðmörk, Reykjavík. Deiliskipulag.

Málsnúmer: 1008137

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1216. fundur

Lagt fram að nýju erindi Reykjavíkurborgar dags. 31. júlí 2012 varðandi nýtt deiliskipulag í Heiðmörk. Á fundi skipulagsráðs Reykjavíkur 11. júlí 2012 var lagt fram erindi Landmótunar að deiliskipulagi fyrir Heiðmörk ásamt fylgigögnum. Skipulagsráð samþykkti að auglýsa tillöguna til athugasemda og ábendinga. $line$$line$Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingardeildar dags. 18. september 2012 varðandi framlagt deiliskipulag.

Samþykkt. Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að fylgja eftir fyrri athugasemdum og ábendingum skipulagsnefndar við kynnta tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur.

02

Skipulagsnefnd - 1214. fundur

Lagt fram erindi Reykjavíkurborgar dags. 31. júlí 2012 varðandi nýtt deiliskipulag í Heiðmörk. Á fundi skipulagsráðs Reykjavíkur 11. júlí 2012 var lagt fram erindi Landmótunar að deiliskipulagi fyrir Heiðmörk ásamt fylgigögnum. Skipulagsráð samþykkti að auglýsa tillöguna til athugasemda og ábendinga. Athugasemdafrestur er til og með 12. september 2012.

Frestað.Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn skipulags- og byggingardeildar.

03

Skipulagsnefnd - 1184. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 21. september 2010 var lagt fram erindi Reykjavíkurborgar dags. 13. ágúst 2010. Erindið varðar deiliskipulag Heiðmerkur. Auglýsing um deiliskipulagið var birt í dagblöðum 11. ágúst 2010 með athugasemdafresti til 22. september 2010.$line$Meðfylgjandi: Deiliskipulagsuppdráttur, greinargerð dags. 9. ágúst 2010 og umhverfisskýrsla dags. 9. ágúst 2010.$line$Bókun: "Heiðmörkin er mikilvægur hlekkur útivistarsvæða höfðuborgarsvæðisins enda mikið notuð af Kópavogsbúum sem og öðrum íbúum svæðisins. Heiðmerkursvæðið liggur að lögsögumörkum Kópavogs, sem nánast umlykja Heiðmerkursvæðið og því telur skipulagsnefnd Kópavogs að skort hafi á nauðsynlegt samráð í verkferli tillögunnar. Áður en að afgreiðslu deiliskipulagstillögunnar kemur hjá borgaryfirvöldum og bæjaryfirvöldum í Garðabæ óskar nefndin eftir því að efnt verði til samráðsfundar við bæjaryfirvöld í Kópavogi þ.e. skipulagsnefnd og umhverfisráð þar sem tillagan verður kynnt, einstakir þættir hennar yfirfarnir með tilliti til lögsögumarka Kópavogs/Reykjavíkur/Garðabæjar og mögulegar breytingar ræddar. Svo sem varðandi aðkomu að Heiðmerkursvæðinu." $line$Á fundi skipulagsnefndar 16. nóvember 2010 var erindið lagt fram á ný ásamt bréfi sviðsstjóra til Reykjavíkurborgar dags. 25. október 2010, þar sem fram koma athugasemdir Kópavogsbæjar við tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur.

<DIV&gt;Sviðsstjóri skýrði frá fundi aðila málsins, sem haldinn var 21. október sl.</DIV&gt;

04

Skipulagsnefnd - 1182. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 21. september 2010 var lagt fram erindi Reykjavíkurborgar dags. 13. ágúst 2010. Erindið varðar deiliskipulag Heiðmerkur. Auglýsing um deiliskipulagið var birt í dagblöðum 11. ágúst 2010 og rennur athugasemdafrestur út 22. september 2010.$line$Meðfylgjandi: Deiliskipulagsuppdráttur, greinargerð dags. 9. ágúst 2010 og umhverfisskýrsla dags. 9. ágúst 2010.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bókun: "Heiðmörkin er mikilvægur hlekkur útivistarsvæða höfðuborgarsvæðisins enda mikið notuð af Kópavogsbúum sem og öðrum íbúum svæðisins.&nbsp; Heiðmerkursvæðið liggur að lögsögumörkum Kópavogs, sem nánast umlykja Heiðmerkursvæðið og því telur skipulagsnefnd Kópavogs að skort hafi á nauðsynlegt samráð í verkferli tillögunnar. Áður en að afgreiðslu deiliskipulagstillögunnar kemur hjá borgaryfirvöldum og<BR&gt;bæjaryfirvöldum í Garðabæ óskar nefndin eftir því að efnt verði til samráðsfundar við bæjaryfirvöld í Kópavogi þ.e. skipulagsnefnd og umhverfisráð þar sem tillagan verður kynnt, einstakir þættir hennar yfirfarnir með tilliti til lögsögumarka Kópavogs/Reykjavíkur/Garðabæjar og mögulegar breytingar ræddar. Svo sem varðandi aðkomu að Heiðmerkursvæðinu." </DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

05

Umhverfisráð - 492. fundur

Lagt er fram erindi frá Skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar dags. 13. ágúst 2010 um deiliskipulag fyrir Heiðmörk. Erindið er sent sveitarfélaginu til umsagnar og er athugasemdarfrestur til og með 22. september. Meðfylgjandi gögn eru umhverfisskýrsla og deiliskipulagsuppdráttur.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<STRONG&gt;Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við deiliskipulagið.</STRONG&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;