Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Bláfjallaskáli í Bláfjöllum. Umsókn um veitingaleyfi

Málsnúmer: 1009086

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2562. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 9/9, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags. 3. september 2010 þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, kt. 590182-1339, um rekstrarleyfi fyrir veitingastofu og greiðasölu í Bláfjallaskála í Bláfjöllum, en umsóknin fellur undir flokk I, sbr. 4. gr. laga nr. 85/2007.

<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar séu innan þeirra marka, sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.</DIV&gt;