Þorrasalir 1 - 15, breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1010191
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2566. fundur
<DIV><DIV>Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar.</DIV></DIV>
02
Skipulagsnefnd - 1183. fundur
Á fundum skipulagsnefndar 17. ágúst og 21. september 2010 var fjallað um endurskoðun deiliskipulags á nýbyggingarsvæðum. Á fundi skipulagsnefndar 19. október 2010 var lögð fram tillaga Skipulags- og umhverfissviðs dags. 19. október 2010, að breyttu deiliskipulagi Þorrasala 1 - 15. Í tillögunni er gert ráð fyrir breytingu á lóðunum að Þorrasölum 5-7, 9-11 og 13-15 sem felst í því að íbúðum fækkar og dregið er úr hæð byggingarreita. Að Þorrasölum 5-7 fækkar íbúðum um 12 og verða 23. Að Þorrasölum 9-11 fækkar íbúðum um 12 og verða 23 og að Þorrasölum 13-15 fækkar íbúðum um 11 og verða 27. Að Þorrasölum 5-15 verða 12 íbúðir undir 80 m² í hverju húsi. Kvöð er sett um trjágróður á bæjarlandi og krafa gerð um samráð um götur á lóðarmörkum. Byggingarreitir breytast. Að Þorrasölum 5-7, 9-11 og 13-15 fækkar bílastæðum úr 162 stæðum í 110 stæði. Fallið verður frá kröfu um niðurgrafnar bílageymslur á lóðunum við Þorrasali 9-11 og 13-15 en í stað þeirra komi stakstæðar bílageymslur. Niðurgrafnar bílageymslur verða við Þorrasali 5-7 fyrir 14 bíla og stakstæðar bílageymslur. Ekki er gerð krafa um að stakstæðar bílageymslur rísi á byggingartíma fjölbýlishúsanna.$line$Eftir breytingu verða 105 íbúðir í fjölbýli á 3-4 hæðum innan deiliskipulagssvæðisins. Heildarfjöldi bílastæða á skipulagssvæðinu er áætlaður 176 stæði. Þéttleiki deiliskipulagssvæðisins samsvarar um 65 íbúðum að meðaltali á hvern ha eða um 315 íbúum á ha miðað við 3 íbúa í íbúð. Nýtingarhlutfall fyrir einstaka lóðir er um 0.9.$line$Að Þorrasölum 1-3 eru ekki áætlaðar breytingar á landnotkun eða nýtingu en kvöð er gerð um trjágróður á bæjarlandi og krafa gerð um samráð um götur á lóðarmörkum.$line$Meðfylgjandi: Deiliskipulagsuppdráttur dags. 19. okt. ´10
<DIV>Skipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.</DIV>