Óskað eftir aðstöðu á Kópavogshöfn fyrir starfsemi fyrirtækisins Dregg ehf
Málsnúmer: 1010237
Ferill máls
01
Hafnarstjórn - 70. fundur
Lagt fram erindi frá Dregg vegna inn- og útflutningsaðstöðu við Kópavogshöfn.
<DIV>Hafnarstjórn tekur undir álit deildarstjóra framkvæmda- og tæknisviðs um að flutningsaðili leigi svæði á hafnarsvæðinu af Kópavogshöfn og útbúi sér sjálfur viðurkennt tollsvæði, sjái sjálfur um alla vöktun á svæðinu og afgreiðslu af tollsvæðinu. Flutningaðili sjái um framkvæmd siglingaverndar í samræmi við ISPS - kóða. Flutningaðili geri áhættumat og verndaráætlun fyrir höfnina. Flutningsaðili innheimti farm- og hafnargjöld og greiði til Kópavogshafnar. Kópavogshöfn beri stjórnsýslulega ábyrgð á að lögum og reglugerðum sé framfylgt. Gerður verði samningur milli Kópavogshafnar og flutningsaðila.</DIV>
02
Hafnarstjórn - 69. fundur
<DIV><DIV>Hafnarvörður gerði grein fyrir áætluðum kostnaði vegna starfseminnar.</DIV><DIV>Hafnarstjórn felur hafnarverði að hafa samband við umsóknaraðila og kostnaðar reikna útgjöld og mögulegar tekjur við þá starfsemi sem gæti skapast í höfninni.</DIV></DIV>