Kvennaráðgjöfin, styrkbeiðni
Málsnúmer: 1011293
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2573. fundur
Frá félagsmálastjóra, umsögn dags. 2/12, um styrk til Kvennaráðgjafarinnar fyrir rekstrarárið 2011. Lagt er til að styrktarframlag verði kr. 150.000.

Bæjarráð samþykkir tillögu um styrk og að hann verði færður á félagsþjónustu Kópavogs.

Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Undirritaður telur ekki rétt að styrkja þessa starfsemi þar sem ýmsum samtökum hefur á síðustu mánuðum verið hafnað sökum fjárskorts Kópavogsbæjar.

Auk þess bendi ég á að ekki var lagður fram ársreikningur eða aðrar upplýsingar um rekstur þessara samtaka.

Ármann Kr. Ólafsson"

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Fjárhagsáætun næsta árs fylgdi erindinu. Talið er að ráðgjöfin sé gagnleg viðbót við félagsþjónustu bæjarins.

Guðríður Arnardóttir"

02
Félagsmálaráð - 1297. fundur
Lögð fram styrkbeiðni frá Kvennaráðgjöf dags. 12. nóvember 2010 sem vísað var til umsagnar Félagsmálaráðs Kópavogs

Félagsmálaráð staðfestir umsögn þar sem lagt er til að framlag verði 150.000 kr.

03
Bæjarráð - 2570. fundur
Frá Kvennaráðgjöfinni, dags. 12/11, styrkbeiðni að upphæð 500.000 kr. fyrir rekstrarárið 2010.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu félagsmálastjóra.