Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Dalvegur, umferðarskipulag

Málsnúmer: 1011349

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2636. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 27/3, afrit af erindum sem borist hafa bænum frá lóðarhöfum Dalvegar 6-8 og 10-14 vegna skipulagsmála, sem óskað var eftir í bæjarráði 15/3.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2634. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 14/3, samantekt á öllum hugmyndum varðandi breytt umferðarskipulag á Dalvegi frá árinu 2006, sem óskað var eftir í bæjarráði þann 8/3 sl.

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Undirrituð óskar eftir afritum af öllum erindum sem borist hafa bænum frá lóðarhöfum Dalvegi 6-8 og 10-14 vegna skipulagsmála.</EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM><EM></EM> Lagt fram.

03

Bæjarráð - 2633. fundur

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

<SPAN style="FONT-FAMILY: " AR-SA? mso-bidi-language: IS; mso-fareast-language: mso-ansi-language: minor-latin; mso-fareast-theme-font: Calibri; mso-fareast-font-family: 12pt; FONT-SIZE: Calibri?,?sans-serif?;><EM>"Undirrituð óskar eftir samantekt á öllum<SPAN style="mso-spacerun: yes"> </SPAN>hugmyndum er varða breytt umferðarskipulag á Dalvegi frá árinu 2006, hvort heldur þær hugmyndir hafi komið frá umhverfissviði eða utanaðkomandi aðilum, sem og samantekt á þeirri umfjöllun sem þær hugmyndir hafa fengið í umhverfis- og skipulagsnefnd.</EM></SPAN><SPAN style="FONT-FAMILY: " AR-SA? mso-bidi-language: IS; mso-fareast-language: mso-ansi-language: minor-latin; mso-fareast-theme-font: Calibri; mso-fareast-font-family: 12pt; FONT-SIZE: Calibri?,?sans-serif?;><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM></SPAN>

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 16. fundur

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 23. janúar 2012 voru lagðar voru fram tillögur að breyttu umferðarskipulagi á Dalveginum.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd fól umhverfissviði að vinna heildar umferðarskipulag fyrir allan Dalveginn.$line$Lögð fram tillaga að umferðarskipulagi vegarins.

Frestað og óskað eftir fleiri tillögum. Bókun frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu: Frá því árið 2007 að lögregluembættin voru sameinuð á höfuðborgarsvæðinu og LRH varð til hef ég á fundum umferðarnefndar Kópavogs bent á hve erfitt væri fyrir lögreglu að komast frá lögreglustöðinni við Dalveg 18 þegar umferð um og m.a. að Dalvegi 18 er mikil.Þegar um forgangsútköll er að ræða skipta sekúndur máli og lögregla verður að eiga greiða og óhefta leið frá starfsstöð sinni. Með þeirri tillögu sem nú liggur fyrir í umhverfis- og samgöngunefnd (var umferðarnefnd) að umferðarskipulagi á Dalveginum er lögreglu ekki tryggð þessi greiða og óhefta leið. Hér er um mikið öryggismál að ræða gagnvart íbúum bæjarins og þeim er þurfa á aðstoð lögreglu að halda. Með því að loka með einhverjum hætti útakstri lögreglu er verið að stefna öryggi bæjarbúa í hættu. Gylfi Sigurðsson, aðalvarðstjóri. Einnig eru lögð fram gögn um hættulegustu gatnamót höfuðborgarsvæðisins 2008- 2011.

05

Umhverfis- og samgöngunefnd - 15. fundur

Lagðar voru fram tillögur að breyttu umferðarskipulagi á Dalveginum.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna heildar umferðarskipulag fyrir allan Dalveginn.