Tillaga um viðtalstíma bæjarfulltrúa
Málsnúmer: 1011367
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1027. fundur
Bæjarráð vísaði til bæjarstjórnar til afgreiðslu tillögum um viðtalstíma bæjarfulltrúa. Annars vegar tillögu Gunnars Inga Birgissonar og hins vegar tillögu Guðrúnar Pálsdóttur, bæjarstjóra.$line$$line$

Forseti bar undir fundinn þá tillögu, sem fyrr var fram komin, frá Gunnari Inga Birgissyni og var hún samþykkt með fimm samhljóða atkvæðum.

02
Bæjarráð - 2573. fundur
Frá bæjarstjóra, dags. 8/12, varðandi tillögu Gunnars Inga Birgissonar um að teknir verði upp að nýju viðtalstímar bæjarfulltrúa. $line$Lagt er til að auglýst verði á vef bæjarins að hægt sé að panta viðtal við bæjarfulltrúa, í gegnum vefinn eða í þjónustuveri. Þjónustuver muni sjá um bókun fundartíma í samráði við bæjarfulltrúa. Með þessum hætti sitji allir við sama borð og kostnaði er haldið í lágmarki.

Bæjarráð vísar tillögunum til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03
Bæjarráð - 2571. fundur
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi tillögu:

""Undirritaður leggur til að viðtalstímar bæjarfulltrúa verði teknir upp að nýju eftir áramót. Aðeins einn bæjarfulltrúi, sem er formaður bæjarráðs, er með auglýsta viðtalstíma hjá bænum. Í anda jafnræðis, lýðræðis og opinnar stjórnsýslu er eðlilegt að aðrir bæjarfulltrúar séu með auglýsta viðtalstíma á bæjarskrifstofum.

Gunnar Ingi Birgisson

Greinargerð:

Í sumar var ákveðið að hætta með viðtalstíma bæjarfulltrúa vegna kostnaðar. Það skýtur skökku við að einn fundur sem fáir bæjarbúar mættu á kostaði yfir 120 þúsund krónur.""

Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.