Deildir 18 og 20 Kópavogstúni. Drög að samkomulagi við Landspítala ásamt fylgigögnum.
Málsnúmer: 1012201
Ferill máls
01
Félagsmálaráð - 1313. fundur
Lagt fram til umræðu og ákvörðunartöku um framhald málsins.

Félagsmálaráð ítrekar þá skoðun sína og vilja að taka yfir þjónustu við þá einstaklinga sem búa á deildum 18 og 20 á Kópavogstúni. Bæði Kópavogsbær og velferðarráðuneytið telja húsnæðið á Kópavogstúni uppfylla reglugerðir. Það mun því ekki koma til greina að Kópavogsbær leggi fjármagn í annað húsnæði. Félagsmálaráð hafnar því drögum velferðarráðuneytisins að samkomulagi dagsett 25. 7. 2011 þar sem gert er ráð fyrir að Kópavogsbær skuldbindi sig til þess að endurskipuleggja húsnæðisþátt þjónustunnar sbr. 6 lið samkomulagsdraganna.

Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.

02
Félagsmálaráð - 1305. fundur

Lagt fram til kynningar og farið yfir stöðu málsins. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnisstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

03
Sérnefnd vegna tilflutnings málefna fatlaðra - 17. fundur

Lagt fram béf frá félagsmálastjóra þar sem hann leggur til að samningsmál verði sett í bið í ljósi nýrra upplýsinga frá fulltrúa velferðarráðuneytisins.

Nefndin lýsir yfir miklum vonbrigðum með framgang málsins hjá velferðarráðuneytinu. Engin trygging er fyrir fjármögnun samkomulagsins þ.a. enn er bið á að vistmenn geti orðið íbúar í Kópavogi með réttindum og skyldum sem því fylgja.

Nefndin ítrekar vilja Kópavogsbæjar til að taka yfir þjónustu við þá einstaklinga sem nú dvelja á deildum 18 og 20 á Kópavogstúni.

04
Sérnefnd vegna tilflutnings málefna fatlaðra - 16. fundur
Fyrirliggjandi gögn eru drög að samkomulagi, drög að húsaleigusamningi og flutningur á fjármagni

Enn er beðið eftir staðfestingu ríkisins um aðkomu að samkomulagi við Landspítalann um fjármögnun til 2014.

05
Sérnefnd vegna tilflutnings málefna fatlaðra - 12. fundur

Kynnt staða mála varðandi samningagerð.

06
Sérnefnd vegna tilflutnings málefna fatlaðra - 11. fundur

Nefndin fagnar áætlunum um að Kópavogsbær taki yfir þjónustu við íbúa á deildum 18 og 20 af Landspítala háskólasjúkrahúsi. Við tilflutninginn fá íbúarnir sömu réttarstöðu og aðrir íbúar í Kópavogi.