Fyrirspurn um Glaðheima
Málsnúmer: 1101367
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2578. fundur
Frá fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 19/1, svar við fyrirspurn um kostnað vegna Glaðheimasvæðisins, sem óskað var eftir í bæjarráði 13/1.

Lagt fram.

Guðríður Arnardóttir bendir á að uppsafnaður kostnaður vegna Glaðheimasvæðis er nú kr. 10.027.029.483 og þá er ótalinn kostnaður vegna vatnsveitu og efndir á samningi við Hestamannafélagið Gust og að gera Glaðheimasvæðið byggingarhæft.

Gunnar Ingi Birgisson óskar bókað:

""Vandséð er að kostnaður á kaupi á landi í Vatnsenda, Vatnsendahlíð og Vatnsendakrikum sé áfallinn kostnaður vegna Glaðheima.

Gunnar Ingi Birgisson""

Gunnar boðar jafnframt bókun og frekari fyrirspurnir á næsta fundi.

Meirihluti bæjarráðs óskar bókað:

""Það kemur á óvart, að Gunnar Ingi Birgisson, fyrrum bæjarstjóri og fyrrum formaður bæjarráðs, skuli ekki sjá samhengi milli þessara landakaupa. Eignarnám í Vatnsenda var óhjákvæmileg afleiðing af uppkaupum hesthúsanna í Glaðheimum. Samningur um flutning hestamannafélagsins á Kjóavelli í landi Vatnsenda rýrði samningstöðu bæjarins gagnvart landeiganda verulega.

Guðríður Arnardóttir Guðný Dóra Gestsdóttir Hjálmar Hjálmarsson Rannveig H. Ásgeirsdóttir""

Ármann Kr. Ólafsson óskar bókað:

""Það er fullkominn útúrsnúningur að taka kaupin á Vatnsendasvæði inn í kostnað vegna Glaðheima. Þarna er verið að taka inn almennar byggingalóðir sem koma málinu ekki við.

Ármann Kr. Ólafsson""

02
Bæjarráð - 2577. fundur
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Í blaðaviðtali í Kópavogspóstinum lét Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs, hafa eftir sér að kostnaður vegna kaupa Kópavogsbæjar á Glaðheimasvæði næmi á annan tug milljarða. Óskað er eftir sundurliðun á þessu.

Gunnar Ingi Birgisson"