Tillaga til bæjarstjórnar um lóðaleigu fyrir atvinnuhúsnæði
Málsnúmer: 1101846
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2579. fundur
"Lóðaleiga fyrir atvinnuhúsnæði í Kópavogi árið 2011 verði kr. 130/m2.$line$Greinargerð:$line$Tíu manna meirihluti bæjarstjórnar hækkaði lóðarleigu á atvinnuhúsnæði um 80% frá árinu 2010. Þetta hefur í för með sér gífurlegan kostnaðarauka fyrir fyrirtæki og fasteignaeigendur auk verulegra hækkana á vatns- og holræsagjaldi. Nú er svo komið að það er helmingi dýrara að reka atvinnuhúsnæði í Kópavogi miðað við Reykjavík því það er ljóst að slík ofursköttun mun hafa áhrif á að fyrirtæki byggi yfir sig og flytji í Kópavog. Því verður að minnka þessa skatta ásamt lækkun á vatns- og holræsagjaldi. En tillaga um það kemur síðar.$line$Gunnar I. Birgisson"$line$
Formaður bar upp tillöguna og var hún felld með 4 atkvæðum gegn einu.