Bæjarráð 3/2
Málsnúmer: 1102001F
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1031. fundur
2581. fundur
<DIV><DIV><DIV>Ármann Kr. Ólafsson tók til máls og ræddi fyrst lið 13, síðan lið 15, svar við fyrirspurn um útboð, og óskar eftir því að þessum lið verði vísað aftur til bæjarráðs. Næst ræddi Ármann lið 19 og síðan lið 40. Forseti lýsti því yfir að liður 15 fæli ekki í sér afgreiðslu og því ekki unnt að vísan honum aftur til bæjarráðs en hægt að taka málið þar upp aftur. Þá tók Hildur Dungal til máls og ræddi lið 5. Þá spurðist Hildur fyrir um um það hvers vegna engir fundir hefðu verið haldnir í íþrótta- og tómstundaráði. Þá tók Pétur Ólafsson til máls og ræddi lið 19. Þá tók Rannveig Ásgeirsdóttir til máls og ræddi yfirfærslu málefna fatlaðra. Þá tók Guðríður Arnardóttir til máls og ræddi fyrst lið 13, síðan lið 15, þá lið 19 og síðan málefni fatlaðra. Þá tók Ómar Stefánsson til máls og ræddi fyrst lið 2 og síðan yfirfærslu málefna fatlaðra. Þá ræddi Ómar lið 43. Þá tók starfandi bæjarstjóri, Páll Magnússon, til máls og svaraði fyrirspurn Hildar Dungal. Ræddi síðan skipulagsbreytingar sbr. lið 19 og svaraði Ármanni Kr. Ólafssyni. Næst tók Gunnar Ingi Birgisson til máls og ræddi lið 19. og skipulagsbreytingar, þá lið 40 og yfirfærslu málefna fatlaðra. Þá tók Hildur Dungal til máls og svaraði fyrirspurn Ómars Stefánssonar varðandi fundargerð félagsmálaráðs lið 2 í fundargerð. Þá tók Margrét Björnsdóttir til máls og ræddi lið 6. Síðan tók Guðný Dóra Gestsdóttir til máls og ræddi lið 19 skipulagsbreytingarnar. Þá tók Hjálmar Hjálmarsson til máls og ræddi skipulagsbreytingarnar sbr. lið 19, styrkveitingar og mælingar á þjónustu bæjarins. Þá tók Ómar Stefánsson til máls varðandi lið 19 og svaraði Guðnýju Dóru Gestsdóttur. Þá tók Guðríður Arnardóttir til máls og svaraði Ómari Stefánssyni. Þá tók Ármann Kr. Ólafsson til máls og svaraði ræðu Guðríðar Arnardóttur og ræddi síðan lið 15 og lið 19 og síðan yfirfærslu málefna fatlaðra. Ármann Kr. Ólafsson kvaddi sér hljóðs varðandi stjórn fundarins. Þá tók Pétur Ólafsson til máls og bar af sér sakir. Þá tók Hjálmar Hjálmarsson til máls og ræddi lið 19. Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs og fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.</DIV></DIV></DIV>