Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Holtsgöng. Nýr Landspítali. Lýsing. Breyting á aðalskipulagi.

Málsnúmer: 1102314

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1059. fundur

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða lýsingu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar einróma og samþykkir erindið.

02

Skipulagsnefnd - 1209. fundur

Lagt fram erindi Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar dags. 23. apríl 2012 og varðar "Uppbyggingu við Landspítala-Háskólasjúkarahús. Holtsgöng, breyting á gatnaskipulagi". Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur ásamt umhverfismati. Kynning sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin er þríþætt: a) að fella út áform um stofnbraut (Holtsgöng)sem ætlað var að tengja Sæbraut og Hringbraut, b) auka byggingarmagn á svæði Landspítala-Háskólasjúkarahúss við hringbraut, til samræmis við tillögu að deiliskipulagi, og c) að breyta legu stofn- og tengistíga á svæðinu milli gömlu og nýju Hringbrautar.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða lýsingu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 20. fundur

Á fundi bæjarráðs 3. maí 2012 var óskað eftir umsögn frá nefndinni vegna erindis frá SSH dags. 28. apríl 2012 um breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.

Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við breytinguna.

04

Bæjarráð - 2640. fundur

Frá SSH, dags. 28/4, erindi vegna afgreiðslu svæðisskipulagsnefndar 27/4 sl. á tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.

05

Bæjarráð - 2639. fundur

Frá Reykjavíkurborg, dags. 23/4, tillaga að breytingu á gatnaskipulagi vegna uppbyggingar við Landspítala-Háskólasjúkrahús.

Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar til umsagnar.

06

Bæjarráð - 2584. fundur

Frá SSH, dags. 15/2, óskað eftir athugasemdum fyrir 18. mars nk. varðandi breytingu á aðalskipulagi höfuðborgarsvæðisins.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

07

Skipulagsnefnd - 1187. fundur

Lagt fram erindi skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar dags. 7. febrúar 2010 þar sem kynnt er í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áform Reykjavíkurborgar um að auglýsa tillögu að breyttu aðalskipulagi. Breytingin er tvíþætt, annars vegar að fella út áform um stofnbraut (Holtsgöng) sem ætlað var að tengja Sæbraut við Hringbraut og hins vegar að auka byggingarmagn á svæði Landspítala háskólasjúkrahúss við Hringbraut.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<STRONG&gt;Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að framkomin tillaga verði auglýst.</STRONG&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;