Hæfing fyrir fatlað fólk. Húsnæðismál
Málsnúmer: 1102336
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2608. fundur
Frá bæjarstjóra, á fundi bæjarstjórnar 13/9, sbr. lið 2 í fundargerð, var samþykkt að vísa tillögu um viðræður við eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga til úrvinnslu bæjarráðs.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að funda með eftirlitsnefndinni um fyrirhuguð kaup bæjarins á fasteignum vegna málefna fatlaðra.

02
Bæjarráð - 2607. fundur
Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð, að hafnar verði viðræður við Landspítala um kaup á húsnæði Fjölsmiðjunnar á Kópavogstúni, sbr. lið 6 í fundargerð framkvæmdaráðs 7/9.

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi tillögu:

""Legg til að málinu verði frestað þar til fyrir liggur niðurstaða í viðræðum við jöfnunarsjóð um húsnæði á hæfingarstöðvar á Dalvegi.

Gunnar Ingi Birgisson""

Tillagan var felld með þremur atkvæðum en tveir greiddu atkvæði með henni.

Bæjarráð samþykkir með þremur samhljóða atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfissviðs að hefja viðræður um kaup en jafnframt að leggja fram samanburð á kostnaði við kaup annars vegar og leigu hins vegar. Tveir fulltrúar sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Sviðsstjóri umhverfissviðs og deildarstjóri framkvæmdadeildar sátu fundinn undir þessum lið.

03
Framkvæmdaráð - 15. fundur
Á fundi framkvæmdaráðs 24. ágúst 2011 var lagt fram til kynningar kostnaðarmat á flutningi hæfingarstöðva á Kópavogstún. Á fundi framkvæmdaráðs 7. september 2011 var lagt fram minnisblað um flutninginn.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að hafnar verði viðræður við Landsspítala um kaup á húsnæði "Fjölsmiðjunnar" á Kópavogstúni.

04
Framkvæmdaráð - 14. fundur
Frá Jóni Inga Guðmundssyni. Kostnaðarmat á flutningi hæfingastöðva á Kópavogstún.

Lagt fram til kynningar. Málið rætt.

05
Sérnefnd vegna tilflutnings málefna fatlaðra - 16. fundur
Umsögn frá yfirmanni þjónustudeildar fatlaðra lögð fram og tillaga frá Gerði Agot Árnadóttur um skipan búsetumála íbúa á á Kópavogstúni.

Nefndin tekur undir þær tillögur sem liggja fyrir fundinum frá Gerði og óskar eftir því að framkvæmdaráð og félagsmálaráð taki mið af þeim. Mikilvægt er að gera áætlun um flutning íbúa deilda 18 og 20 af Kópavogstúni, gamla Kópavogshælinu, og eiga um það samráð og samstarf við velferðarráðuneytið.

Nefndin vekur athygli á að húsnæðismálum hæfingar hefur verið vísað til framkvæmdaráðs til úrvinnslu.

06
Bæjarráð - 2583. fundur

Bæjarráð vísar erindinu til framkvæmdaráðs til úrvinnslu.

07
Sérnefnd vegna tilflutnings málefna fatlaðra - 15. fundur
Jón Ingi Guðmundsson Umhverfissviði sat fundinn undir þessum lið. $line$Teikningar af deildum 18-20 lagðar fram og minnispunktar frá Jóni Inga

Nefndin samþykkir að kannað verði frekar með nýtingu á deild 19 á Kópavogstúni fyrir hæfingu fyrir fatlað fólk