Austurkór 92. Breytt deiliskipulag
Málsnúmer: 1103082
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1193. fundur
Lagt fram erindi lóðarhafa Austurkórs 92 (104) dags. 15. ágúst 2011 þar sem óskað er frekari rökstuðningi vegna neitunar á erindi Eignarhaldsfélagsins Akralindar ehf. sbr. 1192. fund skipulagsnefndar 19. júlí 2011 mál nr. 4.

Frestað.

02
Bæjarráð - 2603. fundur
Skipulagsnefnd hafnar erindinu og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar. Gunnar Ingi Birgisson situr hjá við afgreiðslu málsins.

03
Skipulagsnefnd - 1192. fundur
Lagt fram að nýju erindi lóðarhafa Austurkórs 92 (104) dags. 2. mars 2011 og varðar breytingu á deiliskipulagi við Austurkór 92,- kynningargögn: Rjúpnahæð vestur. Austurkór 92, breytt deiliskipulag, dags. 23. mars 2011. Í breytingunni felst að byggingarreit fyrirhugaðs fjölbýlishúss er snúið, afmörkun lóðarinnar er breytt og hún stækkar, auk þess sem 6 stakstæðir bílskúrar verði á lóðinni í stað 2ja innbyggðra bílskúra. Athugasemdir og ábendingar bárust frá lóðarhöfum Austurkórs 163-165 Hirti Sigurjóni Bjarnasyni og Bjarna Hermanni Halldórssyni sbr. bréf dags. 13. maí 2011, lóðarhafa að Austurkór 90 Jóhannesi Ragnarssyni sbr. bréf dags. 16. maí 2011 og Ivon Stefáni Cilia f.h. lóðarhafa að Austurkór 161 sbr. bréf dags. 18. maí 2011. $line$$line$Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar við athugasemdir og ábendingar er bárust á kynningartíma. Er umsögnin dags. 14. júní 2011.$line$$line$Einnig er lagt fram erindi lóðarhafa Austurkórs 92 til formanns skipulagsnefndar dags. 24. júní 2011 ásamt fylgiskjölum. Þá lögð fram tillaga lóðarhafa Austurkór 92 merkt 4a. Tillögunni fylgja skýringarmyndir Hauks Ásgeirssonar dags. 31. maí 2011. $line$$line$Lagðir fram minnispunktar Skipulags- og byggingardeildar frá samráðsfundum með málsaðilum sem haldnir voru 7. og 14. júlí 2011.$line$$line$Lagðir fram tölvupóstar frá lóðarhöfum að Austurkór 163 og 165 dags. 13. júlí 2011 og Ásgeiri Ásgeirssyni, arkitekt f.h. lóðarhafa að Austurkór 161 dags. 13. júlí 2011.$line$$line$Lagt fram erindi lóðarhafa Austurkórs 92 dags. 15. júlí 2011 ásamt fylgiskjölum.

Skipulagsnefnd hafnar kynntri tillögu að breyttu deiliskipulagi við Austurkór 92 á grundvelli ofangreindrar umsagnar Skipulags- og byggingardeildar og framkominna athugasemda.

Jóhann Ísberg situr hjá við afgreiðslu málsins.

Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

04
Skipulagsnefnd - 1191. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Akralindar ehf. dags. 2. mars 2011 um breytt deiliskipulag á lóðinni nr. 92. Í breytingunni felst að byggingarreit fyrirhugaðs fjölbýlishúss er snúið, afmörkun lóðarinnar er breytt og hún stækkar, auk þess sem 6 stakstæðir bílskúrar verði á lóðinni í stað 2ja innbyggðra bílskúra. Meðfylgjandi er erindi lóðarhafa, kynningaruppdráttur skipulags- og byggingardeildar. Athugasemdir og ábendingar bárust frá lóðarhöfum Austurkórs 163-165 Hirti Sigurjóni Bjarnasyni og Bjarna Hermanni Halldórssyni sbr. bréf dags. 13. maí 2011, lóðarhafa að Austurkór 90 Jóhannesi Ragnarssyni sbr. bréf dags. 16. maí 2011 og Ivon Stefáni Cilia f.h. lóðarhafa að Austurkór 161 sbr. bréf dags. 18. maí 2011. $line$$line$Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar við athugasemdir og ábendingar er bárust á kynningartíma. Er umsögnin dags. 14. júní 2011.

Frestað.

05
Skipulagsnefnd - 1190. fundur
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju erindi Akralindar ehf. dags. 2. mars 2011 um breytt deiliskipulag á lóðinni nr. 92. Í breytingunni felst að byggingarreit fyrirhugaðs fjölbýlishúss er snúið, afmörkun lóðarinnar er breytt og hún stækkar, auk þess sem 6 stakstæðir bílskúrar verði á lóðinni í stað 3ja innbyggðra bílskúra. Meðfylgjandi er erindi lóðarhafa, kynningaruppdráttur skipulags- og byggingardeildar. Athugasemdir og ábendingar bárust frá lóðarhöfum Austurkórs 163-165, vakin er athygli á því að kynningu lýkur 18. maí 2011.

Athugasemdir og ábendingar lagðar fram.

Frestað.

06
Skipulagsnefnd - 1188. fundur
Lögð fram tillaga eignarhaldsfélagsins Akralindar ehf. dags. 2. mars 2011 um breytt deiliskipulag á lóðinni nr. 92 við Austurkór. Í breytingunni felst að byggingarreit fyrirhugaðs fjölbýlishúss er snúið, afmörkun lóðarinnar er breytt og hún stækkar, auk þess sem 6 stakstæðir bílskúrar verði á lóðinni í stað 3 innbyggðra bílskúra. Meðfylgjandi greinargerð og uppdráttur í mkv.1:500 ásamt ljósmynd.

Skipulagsnefnd samþykkir að senda erindið í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til lóðarhafa við Austurkór 159, 161, 163 og 165.