Samningar við Gerplu.
Málsnúmer: 1105065
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1129. fundur
Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að samkomulagi við Íþróttafélagið Gerplu um uppbyggingu á aðstöðu fyrir fimleikaæfingar í íþróttahúsinu við Vatnsendaskóla að Funahvarfi 2 í Kópavogi. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir drög að samkomulagi við Íþróttafélagið Gerplu um uppbyggingu á aðstöðu fyrir fimleikaæfingar í íþróttahúsinu við Vatnsendaskóla með 10 atkvæðum.$line$$line$Jón Finnbogason vék af fundi undir þessum lið.
02
Bæjarráð - 2802. fundur
Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að samkomulagi við Íþróttafélagið Gerplu um uppbyggingu á aðstöðu fyrir fimleikaæfingar í íþróttahúsinu við Vatnsendaskóla að Funahvarfi 2 í Kópavogi.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
03
Bæjarstjórn - 1096. fundur
Frá bæjarritara, skýrsla starfshóps Kópavogsbæjar og Gerplu um framtíðarlausn á húsnæðismálum til fimleikaiðkunar í Kópavogi. Lagt er til að gengið verði til samninga við íþróttafélagið Gerplu um byggingu íþróttahúss við Vatnsendaskóla sem taki mið af þörfum skólastarfsemi og hópfimleika. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar.
04
Bæjarráð - 2730. fundur
Frá bæjarritara, skýrsla starfshóps Kópavogsbæjar og Gerplu um framtíðarlausn á húsnæðismálum til fimleikaiðkunar í Kópavogi.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
05
Bæjarráð - 2705. fundur
Skv. samningi við Gerplu sem samþykktur var á fundi bæjarstjórnar 22. október 2013, skipaður sex manna stýrihópur, þremur frá hvorum aðila, um undirbúning að byggingu húsnæðis fyrir fimleika og aðra íþróttastarfsemi.
Bæjarráð skipar sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, sviðsstjóra umhverfissviðs og sviðsstjóra menntasviðs.
06
Bæjarstjórn - 1084. fundur
Frá bæjarritara, drög að samkomulagi við Gerplu um viðræður og undirbúning að byggingu húsnæðis fyrir fimleika og aðra íþróttastarfsemi. Bæjarráð samþykkir einróma drög að samkomulagi við Gerplu fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir drög að samkomulagi við Gerplu með 10 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá við afgreiðslu málsins.
07
Bæjarráð - 2703. fundur
Frá bæjarritara, drög að samkomulagi við Gerplu um viðræður og undirbúning að byggingu húsnæðis fyrir fimleika og aðra íþróttastarfsemi.
Bæjarráð samþykkir einróma drög að samkomulagi við Gerplu fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
08
Bæjarstjórn - 1073. fundur
Bæjarráð vísar drögum að rekstrar- og þjónustusamningum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt með 10 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi situr hjá.
09
Bæjarráð - 2677. fundur
Frá viðræðunefnd við íþróttafélög, drög að rekstrar- og þjónustusamningum við Gerplu.
Bæjarráð vísar drögum að rekstrar- og þjónustusamningum til afgreiðslu bæjarstjórnar.