Tillaga um rekstur Kjarrsins
Málsnúmer: 1105299
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2595. fundur
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram eftirfarandi tillögu:$line$"Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítreka að þeir telja að meirihluti Kópavogsbæjar hafi brotið á rekstraraðila Kjarrsins með því að segja samningnum upp án þess að reyna að ná fram breytingu eins og 17. grein samningsins kveður á um en í henni segir: "Samningsaðilar skuli eins og framast er kostur reyna að leysa úr mögulegum ágreiningsmálum án þess að koma þurfi til uppsagnar samningsins eða málareksturs". Ágreiningurinn snérist um upphæð greiðslu fyrir þjónustu Kjarrsins. Ekki var reynt að ná fram niðurstöðu í það mál og því má ætla að bærinn hafi ekki beitt meðalhófsreglu í athöfnum sínum né sýnt af sér góða stjórnsýsluhætti. Í ljósi þessa er lagt til að Kópavogsbær vindi ofan af bráðræði sínu og taki upp viðræður við Kjarrið eins og rætt var um við gerð fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir árið 2011 og komi sér hjá frekari vandræðum vegna þessa máls.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson"

Bæjarráð hafnar tillögunni með þremur atkvæðum en tveir greiddu atkvæði með henni.

Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Undirrituð benda á að sjónarmið okkar hafa ítrekað komið fram í bókunum um þetta mál.

Guðríður Arnardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Hjálmar Hjálmarsson, Rannveig Ásgeirsdóttir"