Digranesvegur 12. Umsögn um framlengingu á húsaleigusamningi
Málsnúmer: 1106480
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2612. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 3/10, umsögn um erindi AA samtakanna varðandi beiðni um framlengingu á húsaleigusamningi. Lagt er til að húsaleigusamningi vegna Digranesvegar 12 verði sagt upp með árs fyrirvara frá 1. nóvember nk. Samhliða er lagt til að húsaleigusamningur AA-samtakanna við Kópavogsbæ verði framlengdur til eins árs en samið verði um breytt leiguverð. Þá er lagt til að umhverfissvið komi með tillögur að öðru húsnæði í eigu bæjarins sem AA-samtökunum verði boðin afnot af.

Bæjarráð samþykkir tillögurnar. Tveir fulltrúar sátu hjá.

Sviðsstjóri menntasviðs sat fundinn undir þessum lið.

02
Bæjarráð - 2601. fundur
Frá hússtjórn AA-hússins í Kópavogi, óskað eftir framlengdum húsaleigusamningi á Digranesvegi 12.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til umsagnar.