Skýrsla vegna yfirfærslu málefna fatlaðs fólks - Júní 2011
Málsnúmer: 1106504
Ferill máls
01
Félagsmálaráð - 1312. fundur

Fulltrúar sjálfstæðisflokksins lýsa yfir áhyggjum sínum yfir því hvað þessi málaflokkur virðist stefna; með vísun í ályktun úr skýrslunni þar sem segir orðrétt:
"Það kom í ljós strax eftir áramót, sem menn hafði lengi grunað, þegar loksins fengust upplýsingar um rauntölur við rekstur að vanáætlað var í fjárhagsáætlunum starfsstöðva. Frá því að bærinn yfirtók reksturinn hafa útgjöld verið hærri en tekjur frá fyrsta degi og er hallinn fyrstu 5 mánuði ársins um 15 milljónir króna og stefnir í að uppsafnaður halli verði í kringum 30 milljónir króna í árslok. Ekki má hnika til í rekstri eða nokkuð út af bera til að hann verði ekki enn meiri. "
og óska eftir viðbrögðum um hvernig eigi að bregðast við þessum hallarekstri og þeirri skekkju sem virðist vera.
Karen Halldórsdóttir
Kjartan Sigurgeirsson

Meirihlutinn leggur fram eftirfarandi bókun:
Það var viðbúið að fjárhagsáætlun fyrsta starfsárs sveitarfélaganna í þjónustu við fatlað fólk gæti skekkst þar sem slík áætlun er unnin í fyrsta skipti. Mikil vinna hefur verið lögð í að yfirfærsla á þjónustu við fatlað fólk mætti eiga sér stað hnökra laust. Við teljum að vel hafi tekist til og færum starfsfólki og þeim sem hafa komið að þessari vinnu þakkir fyrir frábært starf.

Atli Sturluson yfirmaður rekstrardeildar sat fundinn undir þessum lið.