Vatnsendablettur 241a, breytt aðalskipulag og verkefnalýsing.
Málsnúmer: 1108167
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1193. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 21. október 2008 er lögð fram tillaga bæjarskipulags að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2000 - 2012. Skipulagssvæðið tekur til lóðarinnar nr. 241a við Vatnsendablett. Í tillögunni felst ósk um breytta afmörkun landnotkunar. Í gildandi aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem íbúðarsvæði og óbyggt svæði. Breytingin felst í því að skilgreint íbúðarsvæði minnkar úr 1425 m2 í 1243 m2 og óbyggt svæði stækkar samsvarandi. Mörk íbúðarsvæðis færast fjær Elliðavatni og verða að jafnaði í um 50 m fjarlægð frá vatninu sbr. gr. 4.15.2 í skipulagsreglugerð nr. 400/1998. Jafnframt færast mörk íbúðarsvæðis til norðurs að Laxatanga og til suðurs að Elliðahvammsvegi. Innan íbúðarsvæðisins er gert ráð fyrir tveimur lóðum 600 og 650 m2 fyrir einbýlishús á einni hæð auk kjallara. Nýtingarhlutfall verður um 0.8. Kvaðir um gönguleið meðfram Elliðavatni og aðgengi að bátaskýli (Vbl. 47a) við vatnið fylgja lóðunum.$line$Meðfylgjandi: uppdráttur í mkv. 1:10.000 dags. desember 2008. Frestað. Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að vinna að því sem fram kom á fundinum.$line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 18. nóvember 2008 er erindið lagt fram að nýju. Skipulagsnefnd samþykkti að tillagan verði auglýst í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 19. desember 2008 er samþykkt að tillagan verði auglýst.$line$Tillagan var auglýst 27. janúar til 24. febrúar 2009, með athugasemdafresti til 10. mars 2009. Athugasemdir bárust.$line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 17. mars 2009 er erindið lagt fram ásamt athugasemdum. Frestað. Bæjarskipulagi falið að taka saman umsögn varðandi innsendar athugasemdir.$line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 21. apríl 2009 er erindið lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 21. apríl 2009.$line$Sviðsstjóri vék sæti við umfjöllun um erindið.$line$Frestað til næsta fundar skipulagsnefndar.$line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 5. maí 2009 er erindið lagt fram að nýju.$line$Tillaga Gunnsteins Sigurðssonar: ,,Undirritaður leggur til að tillaga að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs, sem tekur til lóðarinnar nr. 241a við Vatnsenda og lögð var fyrir skipulagsnefnd 21. október 2008 sem og breyting á deiliskipulagi Vatnsendabletts 241a sem lögð var fyrir skipulagsnefnd 7. febrúar 2009, verði hafnað. Í framhaldi af því verði teknar upp viðræður við landeiganda með það að markmiði að Kópavogsbær eignist umrætt land sem og Vatnsendablett 134. Undirritaður telur afar mikilvægt að Kópavogsbær eignist umrætt land til að tryggja sem best aðgengi bæjarbúa að vatninu, sem og gönguleið umhverfis vatnið.""$line$Skipulagsnefnd samþykkir tillögu Gunnsteins og hafnar erindinu.$line$$line$Tillagan, uppdráttur í mkv. 1:10.000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð dags. í desember 2008 lögð fram að nýju í samræmi við bókun bæjarráðs frá 12. nóvember 2009. Enn fremur lögð fram, í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillaga Skipulags- og byggingardeildar að verkefnalýsingu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs fyrir Vatnsendablett 241a. dags. 23. ágúst 2011.
<DIV>Frestað.</DIV>