Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skipulag á Kársnesi, fyrirspurn

Málsnúmer: 1108364

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1199. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 23. ágúst 2011 fól skipulagsnefnd skipulagsstjóra að ræða við handhafa byggingarréttar á nýlegum skipulögðum svæðum í vesturbæ Kópavogs þ.e.a.s. bryggjuhverfið við Vesturvör, Bakkabraut og Hafnarbraut/Vesturvör (reiti 4 og 7) um að dregið verði úr byggingarmagni á umræddum svæðum. Á fundi bæjarráðs 8. september 2011 var samþykkt að fela bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfissviðs "að ræða við handhafa byggingarréttar á nýlega skipulögðum svæðum í vesturbæ Kópavogs um byggingarmagn á þeim svæðum."

Skipulagsnefnd óskar eftir samantekt á stöðu viðræðna bæjarins og handhafa byggingarréttar samanber ofangreint.

02

Bæjarráð - 2607. fundur

Frá bæjarstjóra, mál sem óskað var eftir á síðasta fundi bæjarráðs 1/9, að tekið yrði fyrir 8/9 sbr. lið 26 í fundargerð, varðandi skipulag á Kársnesi.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfissviðs að ræða við handhafa byggingarréttar á nýlega skipulögðum svæðum í vesturbæ Kópavogs um byggingarmagn á þeim svæðum. Þrír fulltrúar samþykktu afgreiðslu málsins en tveir voru á móti.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;""Við erum algerlega á móti þessari tillögu og teljum að hún geti kostað bæjarsjóð&nbsp;hundruð milljóna króna í skaðabætur.</EM&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;Gunnar Ingi Birgisson, Margrét Björnsdóttir""</EM&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;""Tillagan er fullkomlega óraunhæf og sett fram sem eitthvert sjónarspil.</EM&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;Ómar Stefánsson""</EM&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

03

Bæjarráð - 2606. fundur

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:

<DIV&gt;<EM&gt;""Undirritaður leggur til að liður 18. í fundargerð skipulagsnefndar frá síðasta fundi nefndarinnar verði tekinn til umræðu á næsta fundi bæjarráðs.</EM&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;Gunnar Ingi Birgisson""</EM&gt;</DIV&gt;

04

Skipulagsnefnd - 1193. fundur

Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að ræða við handhafa byggingarréttar á nýlega skipulögðum svæðum í vesturbæ Kópavogs, þ.e.a.s. bryggjuhverfið við Vesturvör, Bakkabraut og Hafnarbraut/Vesturvör( reiti 4 og 7)um að dregið verði úr byggingamagni á umræddum svæðum.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<P&gt;&nbsp;Samþykkt. Jóhann Ísberg og Óttar Felix sitja hjá við afgreiðlsu málsins</P&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;