Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fagraþing 12, breytt deiliskipulag

Málsnúmer: 1109078

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1046. fundur

Lið 12 í fundargerð skipulagsnefndar 15/11 vísað til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

02

Skipulagsnefnd - 1196. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Egils Viðarssonar, byggingarverkfræðings f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 12 við Fagraþing. Í breytingunni felst að komið er fyrir 8x8 m bílgeymslu í norðvestur hluta lóðarinnar og sólstofu 4,3x5,6 m á suðvesturhlið hússins. Uppdrættir og skýringarmyndir 1:2000 og 1:1000 dags. 15. september 2011. Tillagan var grenndarkynnt í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

Samþykkt.Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1194. fundur

Lögð fram tillaga Egils Viðarssonar, byggingarverkfræðings f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 12 við Fagraþing. Í breytingunni felst að komið er fyrir 8x8 m bílgeymslu í norð vestur hluta lóðarinnar og sólstofu 4,3x5,6 m á suðvesturhlið hússins. Uppdrættir og skýringarmyndir 1:2000 og 1:1000 dags. 15. september 2011.

<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Fagraþings 2, 2a, 5, 8, 10 og 14.</DIV&gt;</DIV&gt;