Menningar- og þróunarráð 17/10
Málsnúmer: 1110008F
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1044. fundur
11. fundur
Til máls tók Hafsteinn Karlsson um lið 2 og lagði fram tvær breytingartillögur. Að í gr. 6 falli setningin "Forstöðumaður safnsins starfar í umboði ráðsins og ber ábyrgð gagnvart því." á brott og að fremst í gr. 7 bætist við: "Forstöðumaður er ráðinn samkvæmt reglum bæjarstjórnar Kópavogs um ráðningar starfsmanna. Hann annast allan daglegan rekstur safnsins, gerir fjárhagsáætlanir, fer með fjármálaleg samskipti fyrir hönd ráðsins, ræður starfslið safnsins og er í forsvari fyrir það." Þá falli á brott úr 7. gr. setningin: "Menningar- og þróunarráð Kópavogsbæjar ræður forstöðumann sem sér um allan daglegan rekstur safnsins."Þá fjallaði Hafsteinn Karlsson um liði 3 og 4.Næst tóku til máls Ómar Stefánsson um liði 1, 2, 3 og 4, Gunnar Ingi Birgisson um liði 1, 2 og 3, Hafsteinn Karlsson um lið 2 og 1, Guðrún Pálsdóttir um lið 1 og Ármann Kr. Ólafsson.