Bæjarráð - 2613
Málsnúmer: 1110011F
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1196. fundur
Bæjarráð 20. október 2011.$line$1107107 - Laxalind 13 og 15, umsókn um byggingarleyfi.$line$Frá skipulagsstjóra, umsögn um Laxalind 13-15, breytt deiliskipulag, ásamt bókun skipulagsnefndar frá 17/10 þar sem erindinu er hafnað og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu.
02
Bæjarstjórn - 1044. fundur
2613. fundur
Til máls tóku Ármann Kr. Ólafsson um liði 10, 8, 15 og 18, Margrét Júlía Rafnsdóttir um liði 10, 12 og 13, Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um liði 15 og 18, Rannveig Ásgeirsdóttir um lið 8, Gunnar Ingi Birgisson um liði 15, 17 og 18 og lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Á að halda minnihlutanum frá öllum gögnum varðandi fjárhagsáætlun?</EM><EM>Gunnar Ingi Birgisson"</EM>Þá tóku til máls Ómar Stefánsson um liði 8, 7, 15 og 16, Ólafur Þór Gunnarsson um liði 8 og 15, Margrét Júlía Rafnsdóttir um lið 17, Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um lið 15 og Margrét Björnsdóttir um liði 15 og 7. Hlé var gert á fundi kl. 17:59. Fundi var fram haldið kl. 18:02.Þá tók til máls Ármann Kr. Ólafsson um lið 15 og lagði fram eftirfarandi tillögu:<EM>"Bæjarstjórn Kópavogs skorar á þingmenn kjördæmisins og innanríkisráðherra að setja þegar byggð undirgöng undir Reykjanesbraut sem tengja saman Digranesveg og Lindaveg inn á vegaáætlun 2012 svo Vegagerðin geti greitt skuld sína við Kópavogsbæ frá 2007/2008. Ef það verður ekki gert þá samþykkir bæjarstjórn Kópavogs jafnframt að vísa málinu til umboðsmanns Alþingis.</EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson, Margrét Björnsdóttir, Karen Halldórsdóttir"</EM>Til máls tók Rannveig Ásgeirsdóttir um lið 15. Tillaga bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks var samþykkt einróma. Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.